Fótbolti

Alfreð að semja við lið í þýsku deildinni?

Alfreð í leik með íslenska landsliðinu í haust.
Alfreð í leik með íslenska landsliðinu í haust. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason, framherji Real Sociedad og íslenska landsliðsins, mun samkvæmt öruggum heimildum 433.is skrifa undir samning hjá Augsburg í þýsku Bundesligunni á morgun.

Alfreð sem verður 27 ára á morgun fór frá gríska félaginu Olympiakos í gær en tækifærin voru af skornum skammti hjá Olympiakos.

Skoraði hann eftirminnilega sigurmark liðsins gegn Arsenal á Emirates-vellinum í Meistaradeild Evrópu fyrr í vetur.

Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokar á morgun og kemur fram á 433.is að Augsburg muni kaupa Alfreð frá Real Sociedad á Spáni.

Tókst honum heldur ekki að sanna sig í herbúðum spænska félagsins á fyrsta tímabili sínu þar eftir að hafa raðað inn mörkum í Hollandi árið áður.

Alfreð hafnaði tilboði úr MLS-deildinni en Augsburg er í 12. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 21 stig eftir tvö markalaus jafntefli í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×