Körfubolti

Jón Arnór með sex stig í öruggum sigri

Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu síðasta sumar.
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu síðasta sumar. Vísir/Valli
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia unnu átjánda leikinn í röð í ACB-deildinni í körfubolta á Spáni í dag en Valencia er með fjögurra stiga forskot á Barcelona á toppi deildarinnar.

Valencia sem vann frækinn sigur á Barcelona í framlengingu í síðustu umferð átti í engum vandræðum gegn Bilbao í dag en Valencia var með 16 stiga forskot að fyrsta leikhluta loknum.

Var leikurinn í raun búinn í hálfleik en ótrúlegur varnarleikur Valencia gerði það að verkum að Valencia leiddi í hálfleik 43-18.

Var sigurinn í raun aldrei í hættu í seinni hálfleik og lauk leiknum með 36 stiga sigri Valencia.

Jón Arnór lék í rúmlega 24 mínútur, flestar mínútur allra leikmanna í Valencia og skilaði sex stigum og einni stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×