Innlent

St. Jósefsspítali: Fjármálaráðuneyti til í viðræður við Hafnarfjarðarbæ

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrr í vikunni gerði bæjarstjórn Hafnarfjarðar það að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala.
Fyrr í vikunni gerði bæjarstjórn Hafnarfjarðar það að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. Vísir/Pjetur
Fjármálaráðuneytið er reiðubúið að hefja við fyrsta tækifæri viðræður við Hafnarfjarðarbæ um kaup sveitarfélagsins á eignarhlut ríkissjóðs í fasteignum St. Jósefsspítala. Ráðuneytið segist fagna breyttri afstöðu Hafnarfjarðarbæjar um að sveitarfélagið óski eftir að kaupa eignarhlut ríkisins.

Fyrr í vikunni gerði bæjarstjórn Hafnarfjarðar það að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala.

Í frétt á vef ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hafi í fyrri samskiptum við sveitarfélagið lýst því að það væri reiðbúið að hefja viðræður um kaup við sameiganda sinn að eignunum. Hafnarfjarðarbær hafi þó fram að þessu ekki lýst yfir áhuga á slíkum viðræðum.

„Eignirnar voru síðast auglýstar til sölu um mitt árið 2014 í samstarfi við sveitarfélagið. Vegna skilyrða um heilbrigðistengda starfsemi í söluauglýsingu bárust örfá tilboð sem voru jafnframt langt frá fyrirliggjandi verðmati og af þeim sökum var öllum þeim tilboðum hafnað. Hafnarfjarðarbær hefur hins vegar um nokkurt skeið ekki fallist á að eignirnar yrðu auglýstar aftur til sölu með almennum hætti.

Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um væntanlega sölu eignanna hafa fjölmargar fyrirspurnir borist um eignirnar sem benda sterklega til þess að mikill áhugi sé fyrir þeim á hinum almenna markaði. Þá hafa einnig nokkur áhugaverð tilboð borist í eignirnar þótt þær hafi ekki verið í formlegu söluferli í nokkurn tíma. Ljóst virðist að vilji er fyrir því að hefja aftur starfsemi í umræddum fasteignum í þágu nærsamfélagsins. Það eru sameiginlegir hagsmunir ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar að koma eignunum sem fyrst í notkun enda óviðunandi að húsnæðið standi autt um lengri tíma. Frekari dráttur málsins leiðir til aukins kostnaðar, einkum fyrir ríkið sem hefur borið allan rekstrarkostnað húsnæðisins frá því að starfsemi lagðist af í eignunum, og seinkar því að eignirnar verði gerðar upp og nýttar að nýju.

Ráðuneytið fagnar breyttri afstöðu Hafnarfjarðarbæjar þar sem fram kemur að sveitarfélagið óski eftir að kaupa eignarhlut ríkissjóðs í fasteignum St. Jósefsspítala og er reiðubúið að hefja viðræður við sveitarfélagið við fyrsta tækifæri. Ljóst er að allar slíkar viðræður munu þurfa að byggja á sannvirði eignanna eins og almennt gildir um ráðstöfun eigna ríkisins,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir

Hafnarfjarðarbær vill kaupa St. Jósefsspítala

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×