Innlent

Ríkið bótaskylt ef dæmt er gegn EES-rétti

Óli Kristján Ármannsson skrifar
ESA segir ríkið brotlegt við EES-samninginn með því að hafa ekki klausur í lögum um skaðabótaábyrgð ríkisins gangi íslenskir dómstólar gegn lagaframkvæmd EES.
ESA segir ríkið brotlegt við EES-samninginn með því að hafa ekki klausur í lögum um skaðabótaábyrgð ríkisins gangi íslenskir dómstólar gegn lagaframkvæmd EES. Fréttablaðið/GVA
Íslensk lög koma í veg fyrir að einstaklingar geti höfðað skaðabótamál gegn ríkinu þegar dómstólar fara ekki að EES-rétti. Þetta kemur fram í rökstuddu áliti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í gær. Er þess krafist að Ísland fylgi meginreglunni um skaðabótaábyrgð ríkis vegna brota á reglum EES-réttar, en sú meginregla taki einnig til brota dómstóla.

Fram kemur í tilkynningu ESA að eftirlitsstofnunin hafi komist að þessari niðurstöðu eftir rannsókn í tilefni kvörtunar frá aðila sem taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna rangrar túlkunar Hæstaréttar á EES-rétti.

„Þótt ríki geti borið skaðabótaábyrgð vegna dóma sem brjóta gegn reglum EES-réttar er sjálfstæði dómstóla ekki dregið í efa í niðurstöðu ESA. Hitt er heldur ekki dregið í efa að dómar eru endanlegir. Meginreglan um skaðabótaábyrgð ríkis krefst þess að bætur séu greiddar en ekki endurskoðunar á niðurstöðu dómsins,“ segir í tilkynningu ESA.

Rökstutt álit er annað skrefið í meðferð samningsbrotamáls. „Hafi íslensk stjórnvöld ekki brugðist við rökstudda álitinu með nauðsynlegum aðgerðum innan tveggja mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×