Viðskipti innlent

Gunnar Bragi afléttir þvingunaraðgerðum gegn Íran

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir viðskiptaþvinganir virka þó þær séu umdeildar.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir viðskiptaþvinganir virka þó þær séu umdeildar. Vísir/Vilhelm
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur undirritað reglugerð sem afléttir öllum efnahagslegum og fjárhagslegum þvingunaraðgerðum gegn Íran sem tengjast kjarnorkumálum.

Gunnar Bragi segir ástæðu til að fagna þessum áfanga, sem sé sönnun þess að viðskiptaþvinganir geti haft raunveruleg áhrif á alþjóðavettvangi. „Alþjóðlegur samtakamáttur og samningagerð eru mun farsælli leið til lausnar á deilumálum en vopnaskak.“

Þetta er gert í kjölfar þess að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur staðfest að Íran uppfylli nú nauðsynleg skilyrði um skuldbindingar á sviði kjarnorkumála, sem sett voru fram í sameiginlegri heildarframkvæmdaráætlun 14. júlí síðastliðinn. Að henni stóðu Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakkland, Rússland, Þýskaland og Evrópusambandið.

Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að þvingunaraðgerðirnar sem séu felldar niður varði fjármagnshreyfingar, banka- og tryggingamál, olíu, gas og efni unnin úr jarðolíu, skipaflutninga, skipasmíðar og flutninga, gull, aðra eðalmálma, peningaseðla og mynt, málma, hugbúnað og frystingu fjármuna og ferðabann, sem sé aflétt á vissa einstaklinga og lögaðila.

„Ekki eru felldar niður þvingunaraðgerðir sem varða vopnaviðskipti, eldflaugatækni, frystingu fjármuna og ferðabann á tiltekna einstaklinga og lögaðila, vissar vörur, tækni og þjónustu á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum, vissa málma og hugbúnað á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum.

Allar þvingunaraðgerðir sem varða mannréttindabrot Írans, stuðning Írans við hryðjuverkastarfsemi og aðrar aðgerðir sem ekki tengjast kjarnorkumálum gilda áfram,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×