Bíó og sjónvarp

Guð­mundur Ingi til­nefndur sem besti aðal­leikari á National Film Awards

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur í myndinni.
Guðmundur í myndinni. vísir
Guðmundur Ingi Þorvaldsson hefur verið tilnefndur sem besti aðalleikari á National Film Awards og keppir hann þar á móti stórum nöfnum.

Myndin sem hann leikur í, Chasing Robert Barker, er framleidd af íslenska fyrirtækinu Pegasus.  Chasing Robert fær einnig tilnefningu í flokknum um bestu hasarmyndina. Þar keppir hún til að mynda á móti Star Wars.

Aðrir sem tilnefndir eru í flokknum:

Tom Courtenay (45 Years)

Colin Farrell (The Lobster)

Michael Fassbender (Macbeth)

Colin Firth ( Kingsman – The Secret Service)

Tom Hardy (Legend)

Tom Hiddleston (High-Rise)

Daniel Craig (Spectre)

Taron Egerton ( Kingsman- The Secret Service)

Dev Patel (The Second Best Exotic Marigold Hotel)

Simon Pegg (Absolutely Anything)

Gudmundur Thorvaldsson (Chasing Robert Parker)

Keith Allen (North v South)

Hér er hægt að kjósa og styðja Guðmund í leiðinni. Hrútar fá einnig tilnefningu fyrir bestu erlendu myndina og þykir hún nokkuð sigurstrangleg í þeim flokki.

Myndin Chasing Robert Barker fjallar um 38 ára papparassa í London sem fær ábendingu um að stjörnuleikarinn Robert Barker sitji og snæði kvöldverð með ungri konu á fínum veitingastað. Ljósmyndirnar sem hann nær komast á forsíðu blaðsins sem hann vinnur fyrir og fréttin slær í gegn þannig að ritstjórinn Olly krefst þess að sjá meira. Upphefst þá eltingaleikur við Barker í von um að ná fleiri myndum.Leikstjóri myndarinnar er Daniel Florencio.

Chasing Robert Barker TRAILER from Pegasus on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×