Innlent

Öryggishnappur í norska sendiráðinu setti allt af stað

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan var kölluð að norska sendiráðinu í dag.
Lögreglan var kölluð að norska sendiráðinu í dag. Vísir
Lögreglan dreif sig í útkall í norska sendiráðið við Fjólugötu í Reykjavík í dag. Ekki reyndist þó nein hætta á ferðum; einhver starfsmaður hafði bara rekið sig í öryggishnapp.

„Það er öryggishnappur sem setti allt af stað,“ segir starfsmaður sendiráðsins um atvikið. „Það var ekkert að gerast.“

Sendiráð og fleiri staðir eru búnir sérstökum öryggishnöppum sem eru beintengdir kerfum lögreglunnar. Það á meðal annars einnig við um heimili ráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×