Enski boltinn

Tottenham styrkti stöðu sína í 4. sætinu | Sjáðu glæsimark Alli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tottenham Hotspur styrkti stöðu sína í 4. sæti ensku úrvalsdeildinni með 1-3 sigri á Crystal Palace í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

Crystal Palace, sem hefur verið í vandræðum upp á síðkastið, komst yfir þegar Jan Vertonghen setti boltann í eigið mark eftir hálftíma leik.

Staðan var 1-0 í hálfleik og fram á 63. mínútu þegar Harry Kane jafnaði metin með sínu með 13. marki í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Dele Alli kom Tottenham yfir á 84. mínútu og það var svo varamaðurinn Nacer Chadli sem gulltryggði sigur gestanna í uppbótartíma.

Crystal Palace er í 11. sæti deildarinnar en lærisveinar Alan Pardew hafa ekki unnið í síðustu sex leikjum sínum.

Tottenham er hins vegar enn í 4. sætinu, nú með 42 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×