Viðskipti erlent

Tugum nýrra sérleyfa úthlutað til olíuleitar í lögsögu Noregs

Kristján Már Unnarsson skrifar
Norsk stjórnvöld úthlutuðu í vikunni 56 nýjum sérleyfum til olíuleitar í lögsögu Noregs, allt frá Norðursjó og norður fyrir heimskautsbaug. Tvær aðrar fréttir af nýrri olíuvinnslu í Barentshafi benda til þess að olíuiðnaðurinn telji olíuverðlækkun ekki vara til framtíðar.

Þetta hljómar eins og hrein öfugmæli. Á sama tíma og olíuverð fer undir þrjátíu dollara á tunnuna, - borpallar og olíuþjónustuskip liggja verkefnalaus og stöðugar fréttir berast af uppsögnum í norska olíugeiranum, - þá úthlutar olíumálaráðherrann Tord Lien nýjum sérleyfum í tugatali upp með öllum Noregsströndum í einu stærsta útboði sem um getur í olíusögu landsins.

Á svæðum í Norðursjó voru gefin út 27 ný sérleyfi, í Noregshafi 24 sérleyfi og í Barentshafi 5 sérleyfi. Olíumálaráðherrann fagnaði þessum mikla áhuga olíufélaganna og sagði að aðgangur að nýjum og aðlaðandi vinnslusvæðum væri hornsteinn í stefnu stjórnvalda til að tryggja framleiðslu til langrar framtíðar.

Olíuvinnslupallurinn Golíat fékk leyfi norskra stjórnvalda í vikunni til að hefja olíuvinnslu á nyrstu olíulind heims norðan heimskautsbaugs í Barentshafi.
Þá sjá íbúar Norður-Noregs fram á aukin umsvif því þetta ferlíki er að hefja olíuvinnslu í Barentshafi, úr nyrstu olíulind heims. Þetta er Golíat, 65 þúsund tonna fljótandi vinnslupallur, í eigu ítalska olíufélagsins ENI og norska Statoil, en stjórnvöld gáfu í vikunni leyfi til þess að vinnsla mætti hefjast úr Golíat-olíulindinni. 

Jafnframt lýsti Statoil því yfir það hefði ákveðið að hefja uppbyggingu Johan Castberg-svæðisins, sem er enn norðar, og er stefnt að því að vinnsla hefjist þar árið 2022. Hins vegar hætti Statoil við að leggja olíuleiðslu til lands og byggja nýja olíuhöfn í Norður-Noregi heldur verður olíunni dælt upp í fljótandi vinnsluskip á hafi úti. 

Náttúruverndarsamtök Noregs brugðust við með því að efna til mótmæla við Stórþingið í gær, föstudag. Varaformaður samtakanna, Silje Ask Lundberg, sagði úthlutun leyfanna fáránlega. Þetta væru gleðipillur olíuiðnaðarins, verið væri að efna til losunarveislu til framtíðar, aðeins mánuði eftir loftlagsráðstefnuna í París.

Borpallur við bryggju í olíuhöfninni á Ågotnesi við Bergen. Leiguverð á borpöllum hefur hrapað.Stöð 2/Egill Aða.lsteinsson

Tengdar fréttir

Fresta olíuhöfn í Norður-Noregi

Lagning neðansjávarleiðslu frá nýfundnum olíulindum í Barentshafi til lands í Norður-Noregi , ásamt byggingu nýrrar olíuhafnar við Honningsvåg, er of dýr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×