Erlent

Átján látnir í tengslum við veðrið vestanhafs

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Samgöngur hafa lamast víða á austurströnd Bandaríkjanna.
Samgöngur hafa lamast víða á austurströnd Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Hríðarbylurinn sem gengið hefur yfir austurströnd Bandaríkjanna hefur lamað samgöngur bæði á landi og í lofti undanfarinn sólarhring.

Ferðabann er í gildi í New York, þar sem aðeins einu sinni áður hefur fallið meiri snjór, en búist er við að því verði aflétt í dag. Allt að 102 sentimetra þykkur snjór liggur yfir borgum á svæðinu.

Talið er að dauða átján einstaklinga frá því á föstudag megi rekja til bylsins, bæði vegna umferðarslysa og vegna snjómoksturs. Auk þess hefur rafmagn dottið út hjá yfir 200 þúsund manns.

Neyðarástandi var lýst yfir í ellefu ríkjum; New York, Tennessee, Georgia, Kentucky, North Carolina, New Jersey, Virginia, West Virginia, Maryland, Pennsylvania og Washington D.C.

Hríðarbylurinn er nú á leið út á Atlantshaf og því að rofa til á austurströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×