Lífið

Dró Palin sundur og saman í háði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tina Fey í líki Söruh Palin ásamt tvífara Trumps.
Tina Fey í líki Söruh Palin ásamt tvífara Trumps. skjáskot
Tina Fey sneri aftur í Saturday Night Live í gærkvöldi þar sem hún brá sér í líki fyrrverandi varaforsetaframbjóðandans Söruh Palin.

Í atriði, sem sjá má hér að neðan, gerði hún óspart grín að ræðu sem Palin hélt á stuðningsmannafundi auðkýfingsins Donalds Trumps í Iowa á dögunum en hann sækist eftir því að verða næsti forseti Bandaríkjanna.

Sjá einnig: Palin styður framboð Trump

Ræða Palin vakti mikla athygli, ekki síst fyrir áhugavert tungutak Alaskabúans sem og mikla innlifun. Hafa netverjar jafnvel haldið því fram að Palin hafi verið drukkin þegar hún steig í pontu hjá Trump.

Enginn fótur virðist þó hafa verið þeim vangaveltum. Frammistöðu Tinu Fey í líki Palin má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Palin styður framboð Trump

Sarah Palin, fyrrverandi varaforsetaefni, er áhrifamesti einstaklingurinn innan Repúblikanaflokksins sem lýsir yfir stuðningi við frambjóðanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×