Innlent

Rafmagnslaust í hluta borgarinnar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Landspítalinn í Fossvogi var um stutta stund án rafmagns en unnið er að því að koma rafmagni á öðrum stöðum í kring.
Landspítalinn í Fossvogi var um stutta stund án rafmagns en unnið er að því að koma rafmagni á öðrum stöðum í kring. Vísir/GVA
Rafmagnslaust er í Háaleitishverfi, Skeifunni og á fleiri stöðum. Rafmagn fór af Landspítalanum í Fossvogi í stutta stund en er komið á að nýju. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veitum fór rafmagnið af eftir að aðveitustöð datt út. Unnið er að því að koma rafmagni á aftur og greiningu á orsökum þess að stöðin datt út. Óljóst er hver ástæðan er.

Í tilkynningu frá Veitum er fólki bent á að slökkva á þeim rafmagnstækjum sem ekki slökka á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Þetta á við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki.

Þá er fólki ráðlagt að slökkva á sjónvörpum og að hafa kæli- og frystiskápa ekki opna lengur en þörf krefur.

Uppfært klukkan 10.54

Rafmagn er komið á að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×