Lífið

Febrúarspá Siggu Kling – Vog: Fáðu þér sjálfstraust í morgunmat

Elsku vogin mín. Það er skemmtilegur og spennandi tími fram undan. Það er alltaf eins og þú sért að takast á við nýja hluti og þetta tímabil mun gefa þér vind undir báða vængi. Nú byggist allt upp á því að borða sjálfstraust í morgunmat!

Venus er sterkur og ríkjandi pláneta hjá þér og þú þarft ekkert að óttast, þú ert eins tær og hægt er í samskiptum við aðra.

Það kemur stundum fyrir að þú reynir of mikið að stjórna en það er bara út af því að innra með þér býr eitthvað konungborið og fólkið í kringum þig vill gera þér til hæfis svo það er best fyrir þig að vera bara ljúf sem lamb.

Þú þarft að vera vakandi út þennan mánuð og taka vel eftir öllu sem er að gerast í kringum þig. Því þessi tími sem þú ert að fara í núna er heljarinnar veisla. Og það eru sko miklu fleiri réttir á borðinu en þú tekur eftir!

Þú átt eftir að nýta þér jafnvægi þess að slaka á og láta þér líða vel með rétta fólkinu. Þú ert nefnilega búin að sjá hverjir eru þitt fólk.

Það eina sem gæti valdið þér sárri angist er að þú hefur bara aðeins of stórt hjarta. En það er líka það sem gerir þig líka svo blíða og úrræðagóða og þó að þú eigir eftir að sýna tennurnar þínar aðeins þá mun fólk fyrirgefa þér.

Þetta er tímabil fjölskyldu, friðar, vináttu og stefnufestu. Ástin segir bara eitt við þig á þessum tímum, vertu blíð og friðsöm, og þá færðu það borgað í sömu mynt.

Ást og friður, þín Sigga Kling

Frægir í voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×