Lífið

Febrúarspá Siggu Kling – Fiskur: Einbeittu þér að sjálfum þér

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elsku fiskurinn minn. Það er ýmislegt búið að vera að gerast síðustu mánuði en alltaf stendur þú upp og dustar bara af þér rykið. Svona er þetta bara!

Þú hefur svo kaldhæðin húmor og hann bjargar þér alveg. Þú gleður aðra með hispursleysi þínu og aðdáendur þínir dýrka þig. Samt ertu alltof oft svolítið lítill í hjartanu þínu, hversu ofurkrúttlegt er það!

Það er brjálað að gera hjá þér í þessum mánuði og þú verður mjög ánægður með það. Þetta er líka tíminn sem sem þú skipulegur ferðalög og þú átt eftir að græða mikið útaf ferðalagi eða ferðalögum.

Þú finnur út leið til þess að hala inn meira fé til þess að þú sért rólegur og getir gengið frá því sem þig vantar.

Þú lagar til og gerir allt svo miklu fallegra í kringum þig, þú elskar þennan tíma sem þú ert að fara inn í og passaðu það að gefa þér tíma til þetta að einbeita þér að sjálfum þér og dekra við þig.

Næstu þrír mánuðir rugga lífinu þínu þónokkuð til en þú virðist standa teinréttur, það er sigur í því og þú finnur að þú ert svo miklu sterkari en þú hélst að þú værir og um leið og þú kynnist sjálfum þér betur þá veistu hvert þú vilt fara og hver þú ert í raun og veru. Þú ert meira virði en þú heldur elsku hjartans fiskurinn minn!

Knús í hús, þín Sigga Kling

Frægir fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×