Sport

Hafþór fann ekki fyrir höggunum frá Conor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það vakti heimsathygli er Hafþór Júlíus Björnsson og Conor McGregor tóku létta rimmu í október síðastliðnum.

Þá var Conor að undirbúa sig fyrir bardagann gegn Jose Aldo ásamt Gunnari Nelson. Hafþór Júlíus kíkti til þeirra félaga og tók aðeins á því með írska heimsmeistaranum.

Conor flaug í kringum Hafþór allan tímann og lét nokkur góð högg vaða í fjallið.

„Hann var að reyna að kýla mig en ég fann ekki fyrir höggunum,“ sagði Hafþór Júlíus í viðtali við GQ og hló.

„Conor heldur að hann hafi unnið bardagann en veit ekki að ég tók því rólega því hann var að undirbúa sig fyrir bardaga og ég vildi ekki brjóta hann niður.“

Það var eins gott að okkar maður braut hann ekki niður því Conor mætti fullur sjálfstrausts í bardagann gegn Aldo og rotaði hann á 13 sekúndum.

Hér að ofan má sjá Hafþór og Conor taka á því.

Very excited that I'm flying to Las Vegas tomorrow to support these champs @gunninelson & @thenotoriousmma and witness the UFC 194!!

A photo posted by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson) on

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×