Innlent

Hópur manna sagður kanna grundvöll fyrir framboð Guðna

Birgir Olgeirsson skrifar
Guðni Ágústsson hefur verið einn af helstu stuðningsmönnum Ólafs Ragnars Grímsson, fráfarandi forseta Íslands.
Guðni Ágústsson hefur verið einn af helstu stuðningsmönnum Ólafs Ragnars Grímsson, fráfarandi forseta Íslands. Vísir/GVA
„Ég hef bara verið hér á Kanarí allan janúar og ekkert fylgst með forsetamálum, þannig að þetta kemur mér allt saman jafn mikið á óvart,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, aðspurður um orðróm þess efnis að hópur manna vinni að því að kanna grundvöll fyrir því að Guðni bjóði sig fram til embættis forseta Íslands.

Þetta kemur fram í DV í dag en þar er fullyrt að umræddur hópur manna sé tengdur Framsóknarflokknum og að hann telji Guðna vera verðugan arftaka Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, sem mun ekki sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningum í sumar.

„Það eru alltaf einhverjir að hringja sjáðu og spyrja mig um forsetann. En þjóðin er auðvitað að hugsa djúpt því hún verður að gera það til að finna almennilegan forseta,“ segir Guðni.

Hann segist ekki eina einustu stund hafa hugleitt framboð eða þá hvernig honum myndi vegna í embætti forseta Íslands.

„Ég hef fylgst með mörgum góðum forsetum og það þarf að finna samnefnara úr hæfileikum þeirra. Ég man Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn, Vigdísi Finnbogadóttur og Ólaf Ragnar Grímsson, við þurfum að finna samnefnara úr þessum hópi. Mér sýnist að það komi gott framboð fram áður en varir. Það hlýtur einhver öflugur maður að vera til sem getur fetað í fótspor þessa hæfileikafólks, karl eða kona,“ segir Guðni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×