Innlent

Gerðu nákvæma eftirlíkingu af klefa Sigurðar á Litla-Hrauni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Á öryggismyndavélum sjást Annþór og Börkur fara inn í klefa Sigurðar Hólm á Litla-Hrauni.
Á öryggismyndavélum sjást Annþór og Börkur fara inn í klefa Sigurðar Hólm á Litla-Hrauni. Vísir/Anton Brink

Lögreglan gerði nákvæma eftirlíkingu af klefanum á Litla-Hrauni þar sem Regina Preuss réttarmeinafræðingur og Þóra Steinunn Steffensen, dómskvaddur matsmaður í málinu, gerðu tilraunir til að komast að niðurstöðu um hvort Sigurður Hólm Sigurðsson hefði getað dottið á eitthvað inni í fangaklefanum sínum á Litla-Hrauni.

Um er að ræða klefann þar sem Sigurður Hólm Sigurðsson fannst látinn vorið 2012. Skömmu áður höfðu Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson heimsótt hann í klefann. Þeir eru ákærðir fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða hans.

Tveir lögreglumenn voru klæddir í hvíta boli og krít notuð til að lita þær brúnir og hluti sem gætu mögulega hafa orsakað þá áverka sem drógu hann til dauða. Til viðbótar var dúkka notuð til að líkja eftir falli á stól og klósett sem voru í klefanum.

Þóra lýsti tilrauninni nokkuð ítarlega fyrir dómnum.

„Við skoðuðum allt sem hugsanlega hefði verið hægt að ganga á, eða reka sig í, eða detta ofan á og reyndum að finna út úr því, með því að nota þessa tvo lögreglumenn, hvar ákomustaðurinn myndi vera ef að Sigurður hefði rekið sig í og dottið,“ sagði hún.

Annþór og Börkur lýsa yfir sakleysi sínu í málinu.

Framkallaði marblett

„Létum þá stilla sér upp utan í og ofan á eins og um fall hefði verið að ræða og skoðuðum síðan hvar ákoman væri. Ýmist var ákoman of hátt, eins og til dæmis á hillu, eða hlutirnir eða brúnirnar voru það breiðar að þær hefðu valdið áverka á sjálfum brjóstkassaveggnum,“ sagði hún og bætti við að það hefði framkallað marblett.

„Síðan var stóll í klefanum sem var með sljórri brúnir en aðrir hlutir í klefanum en þegar við notuðum dúkku sem vó áttatíu kíló og slepptum henni ofan á stólinn þá beygluðust fæturnir á stólnum og hann endaði í klessu á gólfinu,“ sagði hún og bætti við að það hefði verið sinn skilningur að stóllinn í klefanum hjá Sigurði hefði verið í lagi, hafi ekki verið beyglaður.“

Þóra sagði einnig að hún teldi ekki nógu mikinn kraft felast í því að standa uppréttur og falla á þá hluti sem voru í klefanum til að miltað hefði rifnað. „Eftir að hafa skoðað þennan eftirlíkingarklefa þá taldi ég að fall í klefanum kæmi ekki til greina sem útskýring á þessum áverkum,“ sagði hún.

Hólmgeir Elías Flosason er verjandi Annþórs Karlssonar.Mynd/versus

Dúkkan þyngri og löggurnar lægri

Hólmgeir Elís Flosason, verjandi Annþórs, sagði að breytur væru í rannsókninni sem ekki pössuðu við raunveruleikann og vildi vita hvort eitthvað annað væri í framkvæmd þessarar óvísindalegu rannsóknar sem ekki passaði við raunveruleika málsins.

Hvorugur lögreglumannanna var þó jafn hár og Sigurður Hólm. Báðir voru þeir lægri í loftinu, en Sigurður var 185 sentímetrar á hæð. Þá var dúkkan sem notuð var í tilrauninni tíu kílóum þyngri en Sigurður Hólm var.

Spurði hann Þóru hvort að þetta væri að hennar mati fullkomin rannsóknaraðferð.

„Það er náttúrulega ekki fullkomið þegar við erum ekki að fórna mönnum. við gerum eins vel og hægt er. Reynum að sjá sem best hvernig ummerki, þessar brúnir eða kantar eða hlutir, myndu skilja eftir sig á líkama lögreglumannanna,“ svaraði hún.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×