Innlent

Lögreglan telur afbrotahópa hafa vopnast

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan lagði hald á 784 skotvopn á árunum 2010-2015.
Lögreglan lagði hald á 784 skotvopn á árunum 2010-2015. Vísir/GVA
Lögreglan telur að síðasta áratug hafi afbrotahópar hér á landi vopnast og það endurspeglist í því að á árunum 2010 til 2015 hafi hundrað skotvopn verið tilkynnt stolin og að lögreglan hafi lagt hald á 784 skotvopn á sama tímabili.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra er yfirmaður lögreglu í landinu.Vísir/Ernir
Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, þingkonu Vinstri grænna, sem birt var í dag. Í fyrirspurninni spyr Bjarkey um vopnavæðingu lögreglunnar.

„Á síðustu árum hafa komið upp tilfelli þar sem afbrotamenn hafa beitt skotvopnum hver gegn öðrum. Þeir hafa ekki enn beitt skotvopnum gegn lögreglu í slíkum tilfellum. Þess ber þó að geta að komið hafa upp tilfelli þar sem skotið hefur verið að lögreglumönnum við störf sín,“ segir í svari Ólafar sem byggir á upplýsingum frá lögreglunni, sem heyrir undir hennar ráðuneyti.

Byssurnar sem lögreglumenn fá almennt að nota eru af gerðinni Glock 9mm.Mynd/Ken Lunde
Ólöf segir að nýjar tegundir árásaraðferða brotamanna í nágrannalöndunum mörg undanfarin ár, til að mynda á Norðurlöndunum, kalli á breytt vinnubrögð lögreglunnar hér á landi. Þessi breyttu vinnubrögð feli meðal annars í sér styttri viðbragðstíma. Þetta er nefnt sem rök fyrir því að 

Þeir lögreglumenn sem fá að vera með vopn fá árlega 69 klukkustunda aðgerðarþjálfun þar sem meðal annars fer fram þjálfun í meðferð skotvopna. Samkvæmt svarinu hafa 355 lögreglumenn fengið þjálfun, ef með eru taldir sérsveitarmenn. Af þeim sem hlotið hafa þessa þjálfun eru 46 konur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×