Enski boltinn

Caulker kominn til Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Caulker í leik gegn Liverpool í síðasta mánuði.
Caulker í leik gegn Liverpool í síðasta mánuði. vísir/getty
Liverpool staðfesti nú seinnipartinn að félagið væri búið að fá varnarmannin Steven Caulker.

Hann kemur að láni frá QPR og verður hjá Liverpool út leiktíðina. Caulker verður orðinn löglegur er Liverpool mætir Arsenal á morgun.

Caulker hefur verið í láni hjá Sunderland og spilaði gegn Liverpool í upphafi síðasta mánaðar. Hann fékk ekki mörg tækifæri hjá Sunderland og kom aðeins við sögu í einum deildarleik.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er í varnarmannavandræðum þar sem Martin Skrtel, Dejan Lovren, Mamadou Sakho, Kolo Toure og Joe Gomez eru allir meiddir meiddir.

Caulker ætti því að fá tækifæri hjá Liverpool á meðan aðrir leikmenn jafna sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×