Enski boltinn

Fullyrt að Mignolet skrifi undir nýjan fimm ára samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Simon Mignolet.
Simon Mignolet. Vísir/Getty
Belgískur blaðamaður hefur fullyrt að Simon Mignolet hafi komist að samkomulagi við Liverpool um nýjan fimm ára samning við félagið.

Kristof Terreur, blaðamaður Het Laatste Nieuws í Belgíu, segir að báðir aðilar séu samþykkir nýjum samningi sem gildir til 2021 og að hann verði undirritaðir á næstu dögum.

Núverandi samningur Mignolet rennur út árið 2018 en þrátt fyrir að Belginn hafi verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína hefur Jürgen Klopp, stjóri liðsins, sagt að hann sé ekki að leita að nýjum markverði.

Sjá einnig: Mignolet fékk á sig skrautlegt mark í sigri Liverpool

Meðal þeirra markvarða sem hafa verið orðaðir við Liverpool eru Jack Butland hjá Stoke og Marc-Andre ter Stegen hjá Barcelona.

M‌ignolet er 27 ára og kom til Liverpool frá Sunderland árið 2013 eftir þriggja ára dvöl þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×