Handbolti

Fyrsti þáttur Handvarpsins 2016: Sest niður með Guðjóni Val

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í handbolta hefja leik á EM 2016 í Póllandi á föstudaginn en þeir mæta Noregi í fyrsta leik.

Eins og í fyrra verður Handvarpið, hlaðvarp Vísis um stórmótin í handbolta, í gangi á meðan Evrópumótinu stendur.

Í fyrsta þætti að þessu sinni ræðir Tómas Þór Þórðarson, umsjónarmaður Handvarpsins, við Guðjón Val Sigurðsson, landsliðsfyrirliða Íslands.

Guðjón Valur gaf sér rúman klukkutíma til að ræða sinn feril, landsliðið og handbolta yfir höfuð, en hann er búinn að vera í landsliðinu síðan 1999.

Á morgun verður svo hitað upp í Handvarpinu fyrir EM í Póllandi og leikirnir verða svo gerðir upp á meðan mótinu stendur.

Hlusta má á fyrsta þátt Handvarpsins 2016 í spilaranum hér að ofan.




Tengdar fréttir

Þeir yngri þurfa að fá tækifæri

Strákarnir okkar hefja leik á EM á föstudaginn en undirbúningi lauk formlega á sunnudaginn. Enn á eftir að skera niður um einn leikmann. Fréttablaðið leitaði til þriggja sérfræðinga til að fara yfir stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×