Enski boltinn

Joe Allen tryggði Liverpool stig gegn Arsenal í miklum markaleik | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joe Allen fagnar jöfnunarmarki sínu.
Joe Allen fagnar jöfnunarmarki sínu. vísir/getty
Varamaðurinn Joe Allen tryggði Liverpool 3-3 jafntefli með marki á lokamínútunni á móti Arsenal í mögnuðum leik á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Liverpool komst tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum en Arsenal jafnaði í bæði skiptin og komst síðan í 3-2 með öðru marki Olivier Giroud eftir aðeins tíu mínútna leik í seinni hálfleik.

Það stefndi í það að það yrði sigurmarkið í leiknum en Liverpool-mönnum tókst að jafna metin og tryggja sér stig.

Fyrstu 25 mínútur leiksins voru ótrúlegar þar sem liðin skoruðu saman fjögur mörk. Roberto Firmino kom Liverpool tvisvar yfir en Arsenal-menn jöfnuðu í bæði skiptin.

Roberto Firmino kom Liverpool í 1-0 strax á 10. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti xxx sem Peter Cech varði.

Aaron Ramsey jafnaði metin fjórum mínútum síðar eftir undirbúning frá Joel Campbell.

Roberto Firmino skoraði síðan frábært mark á 19. mínútu með glæsilegu langskoti og var því búinn að koma Liverpool yfir í tvígang í leiknum.

Það tók Arsenal-menn þó aðeins sex mínútur að jafna þegar Olivier Giroud potaði boltanum inn eftir hornspyrnu Aaron Ramsey.

Olivier Giroud fékk síðan ótrúlegt færi til að skora sitt annað mark þremur mínútum síðar en hitti ekki boltann fyrir framan opið markið.

Roberto Firmino var líka nálægt því að skora sitt þriðja mark í uppbótartíma fyrri hálfleiksins þegar skot hans fór í slána.

Olivier Giroud átti eftir að bæta fyrir klúðrið sitt í fyrri hálfleik þegar hann afgreiddi boltann í markið á 55. mínútu og kom Arsenal í 3-2.

Liverpool sótti grimmt í lokin og það var síðan varamaðurinn Joe Allen sem jafnaði metin á lokamínútunni við mikinn fögnuð Jürgen Klopp og hans manna.

Roberto Firmino kemur Liverpool í 1-0 Aaron Ramsey jafnar fyrir Arsenal Roberto Firmino kemur Liverpool aftur yfir Olivier Giroud jafnar í 2-2 Klúður ársins hjá Olivier Giroud Olivier Giroud kemur Arsenal yfir í 3-2 Joe Allen tryggir Liverpool jafntefli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×