Innlent

Flugvallarmáli borgarinnar gegn ríkinu vísað frá dómi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bitbeinið Reykjavíkurflugvöllur.
Bitbeinið Reykjavíkurflugvöllur. vísir/vilhelm
Máli sem Reykjavíkurborg höfðaði gegn íslenska ríkinu, til viðurkenningar á því að ríkinu sé skylt að efna samning aðila um lokun flugbrautar 06/24 á Reykjavíkurflugvelli og endurskoða skipulagsreglur flugvallarins til samræmis við lokun brautarinnar, hefur verið vísað frá dómi.

Í kröfu borgarinnar fyrir dómi var þess farið á leit að ríkið myndi efna samninginn innan fimmtán daga frá uppkvaðningu dóms eða ellegar greiða tíu milljónir króna í dagsektir til borgarinnar. Til vara var þess krafist að viðurkennt yrði að ríkið væri skaðabótaskylt vegna vanefnda á samningi aðila.

Ríkið vildi meina að í kröfu borgarinnar fælist ráðagerð um að stefndi yrði knúinn til stjórnvaldsathafna en slíkt fellur utan lögsögu dómstóla. Að auki benti lögmaður íslenska ríkisins á að deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar hafi verið fellt úr gildi sem hafi áhrif á hvort borgin eigi lögvarða hagsmuni vegna samkomulagsins.

Að mati dómsins var krafa borgarinnar ósamrýmanleg ákvæðum laga um meðferð einkamála. Það væri ekki hægt að „krefjast viðurkenningar á tiltekinni skyldu stefndu samkvæmt samningi „að viðlagðri greiðslu dagsekta“.“ Til að krafan yrði dómtæk þyrfti annað hvort að líta á hana sem hreina viðurkenningarkröfu eða kröfu um að ríkið framkvæmi ákveðnar athafnir að viðurlögðum dagsektum.

„Af hálfu stefnda [ríkisins] hefur því eindregið verið mótmælt að túlka megi kröfugerð stefnanda á síðarnefnda leið. […] Í ljósi þessarar afstöðu stefnda telur dómurinn sér ekki fært að gefa stefnanda kost á því að lagfæra málatilbúnað sinn að þessu leyti eða túlka kröfugerð hans á þessa leið þannig að málið væri tækt til efnisdóms á þeim grundvelli,“ segir í niðurstöðunni. Því var fyrri túlkunarkosturinn lagður til grundvallar.

Að því virtu var það niðurstaða dómsins að dómur, þar sem aðalkrafa borgarinnar stæði óbreytt, hefði nokkur sjálfstæð réttaráhrif og þá hver þau ættu að vera. Því væri í raun verið að krefja dóminn um álit hans um lagalegt álitaefni. Af þeirri ástæðu og sökum vanreifunar á kröfu borgarinnar var málinu vísað frá dómi.


Tengdar fréttir

Styðja að borgin verði svipt valdi yfir flugvelli

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs, en þar er Egilsstaðaflugvöllur, samþykkti í dag að lýsa yfir stuðningi við lagafrumvarp þess efnis að skipulagsvald Reykjavíkurflugvallar verði í höndum ríkisvaldsins, líkt og gildir um Keflavíkurflugvöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×