Handbolti

Gaupi: Hef ekki enn séð græna ljósið hjá íslenska liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður.
Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður. Vísir/Pjetur
Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður hjá 365 og helsti handboltasérfræðingur þjóðarinnar, er mátulega bjartsýnn á gott gengi íslenska landsliðsins á EM í Póllandi sem hefst í dag. Gaupi segir þó að nokkrum spurningum sé enn ósvarað eftir æfingaleikina fjóra við Portúgal og Þýskaland í aðdraganda mótsins.

„Eftir æfingaleikina fjóra er íslenska liðið á gulu ljósi. Í leikjunum fjórum hef ég enn ekki séð græna ljósið en auðvitað voru batamerki á íslenska liðinu í leikjunum gegn Þýskalandi,“ segir Gaupi. „Því miður voru leikirnir báðir í raun alveg eins. Hver var munurinn? Í fyrri leiknum voru tíu skot varin en fimmtán í þeim síðari. Ef íslenska liðið ætlar sér Ólympíusæti þarf liðið að geta varist en náist það ekki á liðið erfiða daga fyrir höndum í Póllandi.“

Sjá einnig: Markvarslan veiki punktur íslenska liðsins

Aron Pálmarsson spilaði frábærlega í leikjunum tveimur gegn Þýskalandi og skoraði samtals fimmtán mörk, öll með þrumuskotum utan af velli. Gaupi segir nauðsynlegt að Aron haldi uppteknum hætti í Póllandi.

Aron Pálmarsson.Vísir
Þurfum framlag frá fleirum en Aroni

„Eins og ég sé þetta liggur ábyrgðin á herðum Arons Pálmarssonar sem er sannarlega einn besti handboltamaður heimsins. En til þess að þetta gangi þurfum við framlag frá fleiri leikmönnum. Í æfingaleikjunum fjórum fengu margir tækifæri og það er erfitt að átta sig á hver sterkasta uppstillingin er,“ segir Gaupi sem var ánægður með það sem hann sá til Ólafs Guðmundssonar og Guðmundar Hólmars Helgasonar í æfingaleikjunum fyrir EM.

Sjá einnig: Ísland er sigurstranglegra liðið

„Ólafur og Guðmundur Hólmar stóðu báðir vel fyrir sínu, þá sérstaklega sá síðarnefndi, en stórmót er allt annað en æfingaleikir. Við höfum ekki tíma né getu til að gefa mönnum tækifæri á stórmótum. Þegar að stórmóti kemur þarf liðið að vera fullmótað. Íslenska liðið er reynslumikið og veit nákvæmlega hvað fram undan er og vonandi mun það hjálpa til þegar á hólminn verður komið.“

Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska liðsins.Vísir
Of flókin leikáætlun?

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur prófað ýmsa nýja hluti í æfingaleikjunum og m.a. innleitt nýjar áherslur í hraðaupphlaupunum. Gaupi hefur áhyggjur af því að leikáætlun íslenska liðsins sé einfaldlega of flókin.

„Mér finnst uppleggið í þeim leikjum sem ég hef séð verið flókið. Þjálfarateymið hefur verið að reyna nýja hluti og breytt áherslum sem er frábært og við skulum rétt vona að menn séu á réttri leið. Mótið í Póllandi verður erfitt, andstæðingar Íslands beinskeyttir og sterkir,“ segir Gaupi en hann segir að íslenska liðsins bíði erfitt verkefni í riðlakeppninni þar sem mótherjar Íslands eru Noregur, Hvíta-Rússland og Króatía.

Sjá einnig: Aron: Við vitum að þeir eru góðir en við erum líka góðir

„Norðmenn léku vel á æfingamótinu í Frakklandi. Þeir spila sterka vörn, eru með frábæra hornamenn og einn efnilegasta leikmann heims (Sander Sagosen),“ segir Gaupi sem segir að Hvíta-Rússland sé sýnd veiði en ekki gefin.

„Hvít-Rússar munu spila 5-1 vörn gegn íslenska liðinu sem það leysti prýðilega í seinni leiknum gegn Þýskalandi. Króatar spila, líkt og Noregur, sterka 6-0 vörn en mér þykir þó líklegt að þeir muni spila 3-2-1 vörn á móti Íslandi. Allir andstæðingar Íslands munu velta því fyrir sér að „plúsa“ Aron Pálmarsson, taka hann úr sambandi og vonandi höfum við svörin sem til þarf,“ segir Gaupi að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×