Erlent

„Ég tek ekki við fé fyrir að halda ræður hjá Goldman Sachs“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Clinton og Sanders upp á sviði í kappræðunum.
Clinton og Sanders upp á sviði í kappræðunum. vísir/getty
Mest fór fyrir Hillary Clinton og Bernie Sanders í fjórðu kappræðum forsetaframbjóðenda Demókrataflokksins. Kappræðurnar fóru fram í Charleston í Suður-Karólínuríki í gær. Sá síðarnefndi sakaði Clinton meðal annars um að vera of höll undir öfl á Wall Street og að snúa út úr stefnu hans í málaflokkum sem tengjast heilbrigðiskerfinu og byssueign almennings.

Samkvæmt skoðanakönnunum njóta Clinton og Sanders langmests stuðnings hjá flokksmönnum. Sem stendur virðist annars hver maður styðja Hillary en Sanders nýtur hylli rúmlega 38 prósenta kjósenda flokksins. Vinsældir hans hafa einnig aukist mjög á nýja árinu.

Í kappræðunum benti Clinton meðal annars á að hún hefði meiri reynslu heldur en Sanders en hún var um skeið utanríkisráðherra í ríkisstjórn Barack Obama. Hún lýsti því yfir að hún hlakkaði til að taka upp þráðinn þar sem Obama sleppir honum. Sanders á hinn bóginn lýsti því yfir að hann vildi gera byltingarkenndar breytingar og að hann væri ekki orðinn samdauna kerfinu líkt og andstæðingur hans.

Mjótt á mununum í fyrstu ríkjunum

„Ég tek ekki við peningum frá stórum bönkum. Ég tek ekki við fé fyrir að halda ræður hjá Goldman Sachs,“ sagði Sanders meðal annars og uppskar töluverðan fögnuð frá salnum. „Ég er afar skeptískur á það þegar fólk tekur við fé frá aðilum á Wall Street.“ Áhorfendur veittu því einnig eftirtekt að Sanders sýndi meiri viðbrögð en í fyrri kappræðum. Hann átti það til að hrista höfuðið og gretta sig á meðan Clinton svaraði spurningum stjórnenda.

Á móti benti Clinton á að Sanders hefði í gegnum tíðina átt það til að hallmæla Obama. Hann hefði meðal annars leitað að einhverjum til að bjóða sig fram gegn honum í forvali Demókrataflokksins árið 2011. Hún gagnrýndi einnig heilbrigðisáætlun keppinautar síns sem hlotið hefur nafnið „Medicare-for-all“. Hulunni var lyft af henni örfáum klukkustundum fyrir kappræðurnar.

„Ég er ekki viss hvort við erum að tala um áætlun þína sem þú kynntir fyrir kappræðurnar eða áætlunina sem þú hefur lagt níu sinnum fram undanfarin tuttugu ár. Sannleikurinn er sá að við höfum Obamacare sem hefur veitt nítján milljónum sjúkratryggingu undanfarin ár,“ sagði Clinton og bætti við að Medicare-for-all myndi grafa undan Obamacare.

Forval Demókrata hefst 1. febrúar næstkomandi í Iowa og 9. febrúar verður kosið í New Hampshire. Skoðanakannanir sýna að sem stendur gæti Sanders unnið sigur í báðum ríkjum en mjótt er á mununum. Aðrir frambjóðendur njóta mun minni stuðnings en tvímenningarnir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×