Innlent

Þingmenn líti í eigin barm

Una Sighvatsdóttir skrifar
Alþingi kemur aftur saman á morgun eftir fjögurra vikna hlé, en mikil átök voru á þinginu í desember. Þingmönnum gekk illa að ná saman um hvaða mál ætti að afgreiða og ríkisstjórnin var gagnrýn fyrir dræm afköst, enda bíður fjöldi mála enn fyrstu umræðu nú við upphaf vetrarþings.

Aðeins brot af þeim þingmálum sem boðuð voru í haust hafa verið afgreidd. Þannig bíða 76 lagafrumvörp umræðu, 29 eru í nefnd en 22 frumvörp hafa verið samþykkt á yfirstandandi þingi. Hlutföllin eru enn skakkari þegar kemur að þingsályktunartillögum því því 92 tillögur bíða umræðu, 11 eru í nefnd en aðeins 9 tillögur hafa verið samþykktar á yfirstandandi þingi.

Húsnæðismálin ber hæst

Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis bendir þó á að þarna á meðal séu fjölmörg mál frá einstökum þingmönnum sem ekki er búist við að komist á dagskrá. Í forgangi nú verði að koma sem flestum stjórnarfrumvörpum til fyrstu umræðu svo vinna geti hafist í nefndum. Þá séu nokkur stór mál komin vel á veg í nefndum.

„Kannski það sem ber einna hæst hygg ég sé nú húsnæðismálin sem velferðarnefnd er að fara yfir og skoða. Mér finnst ekki ólíklegt að vinna nefndarinnar teygist eitthvað fram á næsta mánuð.“

Einar segir mikilvægt að þingmál séu kláruð tímanlega og strandi hvorki hjá ríksistjórn né í nefndum, svo eðlileg umræða geti farið fram á öllu þíngtímabilinu en hlaupi ekki í hnút á lokametrunum. „Ég hvatti til þess í lok þingsins rétt fyrir jól að við settumst niður og reyndum að gera okkur grein fyrir því hvernig við getum rætt fjárlögin með öðrum og betri brag en tóks til fyrir jólin."

Pólitísk samstaða um að setja siðareglur

Hann segist vetrarþing leggjast ágætlega í sig og vonast til að sleginn verði annar og betri tónn en sá sem ómaði í þingsal fyrir jól. „Ég ætla satt að segja að vona það og vona að við höfum lært ýmislegt af þessu. Við þurfum að líta í eigin barm, allir þingmenn, og sjá hvað við getum gert betur í þessum efnum. Ég held að innst inni viljum við auðvitað að góður bragur sé á þessu."

Áður en þingfundur hefst á morgun mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eiga fund þar sem aðalumfjöllunarefnið verður þingsályktunartillaga um siðareglur fyrir Alþingismenn. Einar er sjálfur flutningsmaður þeirrar tillögu og telur mikilvægt að hún verði afgreidd.

„Vissulega geri ég ráð fyrir að það séu einhverjir stakir þingmenn sem hafi eitthvað við það að athuga, skárra væri það nú. En það er auðvitað þannig að það er kveðið á um það í lögum um þingsköp Alþingis að þingið skuli setja sér siðareglur. Það hefur nú tekið býsna langan tíma í undirbúningnum, en sem betur fer er breið pólitísk samstaða um það."


Tengdar fréttir

Pirringur og hnútukast á Alþingi

Enn á eftir að afgreiða fjárlög, fjáraukalög, frumvarp um opinber fjármál, bandorminn, frumvarp um RÚV og Þróunarsamvinnustofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×