Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Snæfell 90 - 89 Höttur | Mikilvægur sigur hjá Snæfell í Stykkishólmi

Daníel Rúnarsson í Stykkishólmi skrifar
Sigurður Þorvaldsson skoraði síðustu tvö stig Snæfells.
Sigurður Þorvaldsson skoraði síðustu tvö stig Snæfells. Vísir/Stefán
Lið Snæfells vann í kvöld afar mikilvægan sigur á Hetti frá Egilsstöðum í Dominos-deild karla, 90-89. Mikil spenna var í leiknum allt frá upphafi til enda og afar mjótt á mununum.

Eins og svo oft áður í vetur komu leikmenn Hattar vel innstilltir til leiks og náðu fljótt sex stiga forystu. En eins og svo oft áður var forystan fljót að fara frá þeim og jöfnuðu heimamenn stöðuna í 9-9.



Í takt við bætt spil Hattar í undanförnum leikjum tókst þeim að setja saman annað áhlaup og breyttu stöðunni í 9-17. Snæfellingar reyndu hvað þeir gátu að svara áhlaupi gestanna en komust lítið áfram, staðan 16-22 eftir 1. leikhluta.

Snæfellingar byrjuðu 2. leikhluta vel og hófu að saxa á forystu gestanna. Lítil gæði voru þó í leik beggja liða og minnti á stundum helst á götubolta þar sem sá sem hafði boltann hverju sinni tók annað hvort skot eða reyndi að hnoða sér leið að körfunni.

Um miðbik leikhlutans komust Snæfellingar yfir í fyrsta skipti og virtust í framhaldinu ætla að stinga af. Í stöðunni 43-34 tók Viðar þjálfari Hattar leikhlé sem skilaði sínu. Tveir snöggir þristar komu gestunum aftur inn í leikinn en lokakarfa fyrri hálfleiks féll Snæfellsmegin og leiddu þeir 45-40 í hálfleik.

Snæfellingar héldu uppteknum hætti í upphafi seinni hálfleiks. Voru ávallt nokkrum skrefum á undan gestunum sem þrátt fyrir fín áhlaup, mestmegnis í boði Tobin Carberry, komust aldrei nær en 5 stig.

Fjórði leikhluti fór rólega af stað hjá öllum leikmönnum nema Tobin Carberry sem raðaði niður stigunum fyrir gestina. Óteljandi áhlaupum hans var svarað jafnharðan af Snæfellingum og sveiflaðist forystan á milli liða allan leikhlutann.

Sigurður Þorvaldsson skoraði síðustu tvö stig Snæfells af vítalínunni og kórónaði þar með flottan leik sinn og tryggði Snæfellingum sigurinn. Höttur fékk þó tækifæri í lokasókninni til að stela sigrinum en Hreini Birgissyni brást bogalistin og stigin tvö því Hólmara.

Leikurinn minnti oft og tíðum frekar á götubolta en skipulagðan körfubolta í efstu deild. Leikmenn hnoðuðust mest megnis einn á einn sem hefur sjaldan gefið góða raun í íslenskum körfubolta. Tobin Carberry var manna líflegastur hjá gestunum með 40 stig. Frábær íþróttamaður þar á ferð sem þarf einfaldlega meiri aðstoð frá félögum sínum.

Með sigrinum dýpkar enn holan sem Hattar-menn hafa komið sér í og fall í fyrstu deild blasir við liðinu. Snæfellingar hafa hinsvegar komið sér þægilega langt frá fallbaráttunni og eru vafalaust farnir að láta sig dreyma um úrslitakeppni í vor.

Viðtöl væntanleg innan skamms.

Það er hægt að sjá textalýsingu frá blaðamanni Vísis á vellinum hér fyrir neðan.



Textalýsing: Snæfell - Höttur

Ingi þjálfari Snæfells: Tek glaður þessi sigurtár

Ingi fékk hitakrem í augað undir lok leiksins og felldi því tár í viðtali við undirritaðan.

"Ég skal samt alveg taka þessu sem sigurtárum. Ég er gjörsamlega búinn á því." sagði Ingi kófsveittur og örmagna að leik loknum.

"Við vorum komnir með þægilega stöðu, 13-14 stiga forystu, en þá var okkur bara fyrirmunað að stíga menn út og þeir fengu 15 stig úr sóknarfráköstum. Og alltaf var Tobin Carberry opin, ég var mjög ósáttur við það. En ég var ánægður með Akureyringinn og New York búann (innskot: Stefán Karel og Sherrod Wright) sem lokuðu á Tobin í lokasókninni hjá þeim sem tryggði okkur sigurinn."

Á mikilvægum augnablikum komu varamenn Snæfells til bjargar og má með sanni segja að þeir hafi verið munurinn á liðunum í kvöld.

"Við fengum frábært framlag af bekknum. Birkir kom inn og setti þrist enda deadly skytta, Jón Páll kom sterkur líka eftir meiðsli og ég er stoltur af þessum mönnum sem komu inn og mér fannst bekkurinn okkar gera gæfumuninn í kvöld. Svo var mjög ánægjulegt að sjá Sigga Þorvalds aftur sem þann Sigga Þorvalds sem við þekkjum. "

En eru Snæfellingar sloppnir við fallið eftir þennan sigur?

"Þetta var þeirra síðasta tækifæri til að soga okkur niður í fallbaráttuna en við tókum stórt skref í hina áttina, að sækja á úrslitakeppnina. Ég held að við séum 3-4 sigrum frá því að komast þangað og við eigum nokkra heimaleiki eftir." sagði Ingi að lokum.

Viðar: Óþolandi helvítis, helvíti.

 Viðar þjálfari Hattar var ekki upplitsdjarfur í leiks lok eftir að hafa tapað með minnsta mun.

"Já já, þetta er bara eins tæpt og það verður og það ekki í fyrsta skipti. Óþolandi helvítis, helvíti."

"Mér fannst við bara ekkert leggja á okkur né fara eftir upplegginu hvorki varnarlega né sóknarlega. Við gerðum bara smábarnamistök í vörninni og þá fer þetta svona. Við ætluðum að byggja á síðustu tveimur leikjum sem við spiluðum vel en Snæfellsliðið spilaði vel og þeir kláruðu þetta bara, en við gáfum þeim líka færi á því." sagði Viðar hundfúll.

Með tapinu færast Hattar menn fjær og fjær því að spila í efstu deild, er Viðar búinn að gefast upp í fallbaráttunni?

"Þetta verður alltaf erfiðara og erfiðara að minnsta kosti. Við höfum ekkert verið að glápa á töfluna núna eftir áramót og pæla eitthvað í þvi. Við ætluðum bara að vinna í okkar leik og gera betur og betur, þetta var að þróast ágætlega en svo kemur þetta og við fórum ekki eftir neinu sem upp var lagt."

Höttur fékk færi á að vinna leikinn í lokasókninni en mistókst ætlunarverkið.

"Við ætluðum að hlaupa pick n roll á toppinn með Tobin og Mirko en við fórum illa að ráði okkar og þeir náðu að loka á okkur og við fórum í vont skot. Ég hef það samt á tilfinningunni að þessi leikur hefði ekki átt að koma niður á lokasókninni eins og svo margir aðrir í vetur. En við erum ekki nógu snjallir og erum ennþá að læra." sagði Viðar að lokum á leið í langt ferðalag aftur austur á Egilsstaði.

Siggi Þorvalds: Tileinka yfirmanni mínum að austan sigurinn

Sigurður Þorvaldsson var einn af betri mönnum Snæfells í sigrinum í kvöld og var að vonum ánægður í leikslok.

"Hörkuleikur, þeir hafa verið mjög góðir eftir áramót og við lentum líka í hörkuleik við þá í fyrri umferðinni. Ég held að það sé samt enginn glaðari en yfirmaður minn sem er að austan, þessi sigur er tileinkaður henni." sagði Sigurður kaldhæðinn eftir leik.

Sigurður hefur glímt við meiðsli í kálfa á tímabilinu en virðist vera að hrista þau meiðsli af sér.

"Ég er allur að verða betri. Jólafríið kom á frábærum tíma fyrir mig og ég hef náð að æfa núna eftir áramót, sem ég gerði ekkert af fyrir jól."

Eru Snæfellingar lausir við falldrauginn eftir þennan sigur, hvert stefna Hólmarar nú?

"Við viljum bara halda okkur uppi í deildinni, erum ekkert að fara fram úr okkur með það. En ef við komumst á smá skrið þá er stutt á milli og aldrei að vita." sagði Sigurður að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×