Formúla 1

Nasr: Sauber verður allt öðruvísi 2016

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Felipe Nasr á Sauber bílnum.
Felipe Nasr á Sauber bílnum. Vísir/Getty
Sauber tekur grimmari nálgun við hönnun 2016 bílsins en liðið gerði með bíl síðasta árs. Liðið þarf að taka stórt skref fram á við segir annar ökumanna liðsins, Felipe Nasr.

Nasr náði í 27 af 36 stigum liðsins á síðasta tímabili. Sauber endaði í áttunda sæti í keppni bílasmiða á eftir Toro Rosso og undan McLaren-Honda.

Nasr segir að liðið hafi ákveðið að breyta nálgun sinni við þróun bíls næsta árs. Liðið vill hanna bílinn frá grunni frekar en byggja ofan á C34 bílinn sem notaður var 2015.

„Hingað til hefur liðið verið mjög raunsætt og allt sem ég hef séð lítur gjörbreytt út,“ sagði Nasr í samtali við Motorsport.

„Ef við myndum halda áfram að þróa bílinn frá því í fyrra þá næðum við ekki nema litlum skrefum. Þess vegna ætlum við að leita á ný mið á næsta ári,“ bætti Nasr við.

Nasr býst samt ekki við gríðarlegum framförum en ágætis skrefi fram á við.

„Ég held að ég búist við skrefi fram á við. Við skiljum að bíllinn þarf að batna, við vitum hvaða veiku bletti bíllinn hefur en það er erfitt að kollvarpa þessu enda með bíl sem vinnur keppnir. Það er ekki að fara að gerast en ég veit við náum framförum,“ sagði Nasr að lokum.


Tengdar fréttir

Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1

Forseti Ferrari, Sergio Marchionne hefur sagt að hann íhugi að draga Ferrari úr keppni í Formúlu 1, verði að hugmyndum um einfaldari vél frá óháðum framleiðanda.

Schumacher getur ekki gengið

Umboðsmaður Michael Schumacher hefur blásið á sögusagnir þess efnis að ökumaðurinn sé farinn að ganga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×