Fótbolti

Notar jólin til að reyna að halda í Aubameyang

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pierre-Emerick Aubameyang getur ekki hætt að skora fyrir Dortmund.
Pierre-Emerick Aubameyang getur ekki hætt að skora fyrir Dortmund. vísir/getty
Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri Dortmund, ætlar ekki að selja Pierre-Emerick Aubameyang til Englands í janúar en Arsenal og Liverpool er bæði sögð áhugasöm um leikmanninn.

Aubameyang hefur verið magnaður í liði Dortmund í vetur og skoraði 24 mörk í 23 leikjum, en Arsenal er sagt ætla að gera Dortmund 42 milljóna punda tilboð í framherjann.

Liverpool er einnig á höttunum eftir honum, en Jürgen Klopp var auðvitað maðurinn sem fékk Aubameyang til Dortmund og þekkir hann mjög vel.

„Það má enginn halda að Dortmund standi og falli með einum manni. Við treystum ekki á neinn einn mann,“ segir Watzke í viðtali við þýska blaðið Bild.

„Við fundum lausn á því þegar Robert Lewandowski fór og Aubameyang er búinn að skora þremur mörkum fleiri en hann. Við erum svo vel í stakk búnir að við getum alltaf fundið lausnir.“

„Við ætlum að halda þessu liði saman. Við erum ekki jafn vel fjárhagslega staddir og stærstu liðin í ensku úrvalsdeildinni en við höfum upp á margt að bjóða. Leikmenn okkar fá til dæmis að fagna jólunum,“ segir Watzke en jólafrí er í þýsku 1. deildinni eins og í flestum deildum Evrópu utan Englands.

Watzke bendir einnig á að þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikmaður Dortmund er orðaður við önnur lið. „Á þessum tíma á síðasta ári skrifuðu margir blaðamenn að okkar stjörnur væru á leið burt. Hummels var farinn til Manchester United og Gündogan til Real Madrid, United eða Barcelona. Hvar eru þeir núna? Enn þá hjá okkur!“ segir Hans-Joachim Watzke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×