Innlent

Skoðanakönnun: Katrín Jakobsdóttir nýtur mests stuðnings lesenda Vísis

Bjarki Ármannsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sá einstaklingur sem hlýtur flest atkvæði í skoðanakönnun Vísis þar sem spurt er hvern lesendur vilja helst sjá sem næsta forseta Íslands.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sá einstaklingur sem hlýtur flest atkvæði í skoðanakönnun Vísis þar sem spurt er hvern lesendur vilja helst sjá sem næsta forseta Íslands. Vísir
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sá einstaklingur sem hlýtur flest atkvæði í skoðanakönnun Vísis þar sem spurt er hvern lesendur vilja helst sjá sem næsta forseta Íslands.

Þó eru nokkuð fleiri sem segjast frekar vilja sjá „einhvern annan“ en þá þrettán mögulegu og staðfestu forsetaframbjóðendur sem Vísir tók saman fyrir könnunina. Katrín hlaut 2973 atkvæði, eða tuttugu prósent, en 3130 sögðust helst vilja sjá einhvern annan, eða 21 prósent.

Tæplega fimmtán þúsund atkvæði bárust

Ekki er um vísindalega könnun að ræða, heldur var lesendum Vísis boðið að segja sína skoðun í grein sem birt var á laugardagskvöld. Tæplega fimmtán þúsund atkvæði bárust. Hægt var að velja einhvern af þrettán mögulegum eða staðfestum frambjóðendum sem Vísir tók saman eða valkostinn „einhvern annan.“

Árni Björn Guðjónsson og Hildur Þórðardóttir voru ekki meðal þeirra sem í boði var að kjósa en þau hafa tilkynnt um framboð sitt til forseta frá því að greinin var birt.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sú sem lesendur vilja helst sjá á Bessastöðum ef marka má könnunina.Vísir/GVA
Sem fyrr segir, völdu flestir valkostinn „einhvern annan“ en Katrín hlaut flest atkvæði einstaklinga. Katrín er ítrekað nefnd í tengslum við forsetaframboð en hefur lýst því yfir að hún hafi engar áætlanir um að bjóða sig fram, án þess þó að útiloka það alveg.

Andri Snær Magnason rithöfundur fylgir næst á eftir með 2404 atkvæði eða sextán prósent. Andri sagðist í Föstudagsviðtali Fréttablaðsins fyrir helgi ekki útiloka framboð vegna áhugaverðra tíma sem nú eru uppi.

Jón Gnarr, dagskráarstjóri og fyrrverandi borgarstjóri, hlýtur níu prósent atkvæða, Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur sjö og þeir Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi, og Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, sem hefur sagt „yfirgnæfandi líkur“ á því að hann bjóði sig fram, hljóta fimm prósent hvor um sig.

Niðurstöðurnar í heild sinni má skoða hér fyrir neðan. Athugið að niðurstöðurnar eru gefnar upp í prósentum af greiddum atkvæðum.

Sex í framboði

Að Þorgrími meðtöldum hafa sex boðið sig fram til forseta. Hinir eru Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur, Ástþór Magnússon, Sturla Jónsson, Árni Björn Guðjónsson og Hildur Þórðardóttir.

Ólafur Ragnar Grímsson hefur sem kunnugt er lýst því yfir að hann sækist ekki eftir embættinu á ný í sumar. Líkur þar með tuttugu ára setu á Bessastöðum sem hefur haft mikil áhrif á embættið.


Tengdar fréttir

Meiri óvissa um hlutverk forseta nú en fyrir tuttugu árum

Næstu forsetakosningar munu að miklu leyti snúast um arfleifð Ólafs Ragnars Grímssonar og hvort þjóðin vilji pólitískan forseta eða sameiningartákn. Þetta segir Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, sem telur að meiri óvissa ríki um hlutverk forseta nú en fyrir tuttugu árum.

Hildur gefur kost á sér til forseta

Rithöfundurinn og þjóðfræðingurinn Hildur Þórðardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands í sumar. Hún ætlar að gefa út bók samhliða framboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×