Fótbolti

Turan fer í gömlu treyjuna hans Eiðs Smára

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Turan og Vidal í nýju treyjunum sínum.
Turan og Vidal í nýju treyjunum sínum. vísir/getty
Í heila fjórtán mánuði hefur Barcelona ekki mátt nota nýja leikmenn en það bann er nú á enda.

Félagið keypti tvo leikmenn síðasta sumar sem hafa mátt gera sér það að góðu að bíða í allan vetur eftir því að spila fyrir félagið.

Þetta eru þeir Arda Turan og Aleix Vidal. Barcelona kynnti númerin þeirra í gær. Vidal verður númer 22 en Turan tekur treyju númer sjö sem er númerið sem Eiður Smári Guðjohnsen bar er hann lék fyrir félagið.

Turan kom til félagsins frá Atletico Madrid fyrir 26 milljónir punda. Vidal kom frá Sevilla á 13 milljónir punda.

Báðir leikmenn mega spila gegn Espanyol á morgun í bikarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×