Enski boltinn

De Gea: Viljum vinna Evrópudeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David de Gea.
David de Gea. vísir/getty
Markvörður Man. Utd, David de Gea, kýs að líta á björtu hliðarnar í lífinu og vill ná árangri í Evrópudeildinni.

Man. Utd komst ekki upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem voru mikil vonbrigði enda liðið í frekar léttum riðli. Evrópudeildin bíður því Man. Utd.

„Evrópudeildin er skemmtileg keppni til að taka þátt í. Ég hef góðar minningar úr keppninni því ég vann hana með Atletico Madrid árið 2010,“ sagði De Gea.

„Við erum Man. Utd. Við féllum úr leik í Meistaradeildinni og við verðum þá að reyna að vinna þessa keppni. Ég held við séum tilbúnir að gera það.“

United spilar gegn danska liðinu Midtjylland í 32-liða úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×