Handbolti

Aron: Er að leita að svörum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. Vísir/Ernir
Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, segir að það hafi verið óþarfi að tapa fyrir Portúgal í kvöld en liðin mættust þá í Kaplakrika í æfingaleik.

Ísland leiddi með einu marki í hálfleik, 17-16, en missti leikinn úr höndunum síðustu tíu mínúturnar og fögnuðu fjögurra marka sigri, 32-28. Aron var engu að síður ánægður með margt hjá sínum mönnum.

„Vinnuframlagið var fínt og viljinn til staðar hjá leikmönnum. Menn voru að berjast en það vantaði aðeins upp á agann, sérstaklega í sókninni. Menn vildu þetta kannski aðeins of mikið,“ segir þjálfarinn.

Vantaði jafnvægi

Aron segir að það sé ýmislegt nýtt í leikskipulagi íslenska liðsins og því eðlilegt að það þurfi tíma til að fínpússa það. Fram undan séu æfingar, leikur gegn Portúgal á morgun og svo tveir leikir gegn Þýskalandi um helgina.

„Það sem vantaði í þennan leik var jafnvægi á milli þess sem við spilum hraðan leik og þegar við þurfum að hægja á okkur. Við náðum ekki að hægja á leiknum nægilega mikið sem er sérstaklega mikilvægt í leikjum þar sem allt gengur ekki að óskum. Þá þarf maður að geta spilað lengri sóknir.“

Markvörður Portúgals átti stórleik í kvöld en þrátt fyrir það segir Aron að strákarnir hafi náð að spila sig í góð færi í leiknum.

„Hann tók mörg skot hjá okkur úr ákjósanlegum færum. En það sem var ekki nægilega skynsamlegar ákvarðanir í línusendingunum okkar. Það kostaði mikið því við fengum mikið af hraðaupphlaupum í bakið.“

Aðrir taka ábyrgð á morgun

Aron segir að það sé ekki komin endanleg mynd á þann hóp sem fer til Póllands. Það hafi því ekki endilega verið vísbending í kvöld hverjir fengu að spila og hverjir voru á bekknum.

„Ég er að leita að svörum og því erum við að hreyfa aðeins við mönnum. Á morgun þurfa svo aðrir leikmenn að taka ábyrgð og við þurfum að nota báða leikina gegn Portúgal til að fá þau svör sem við þurfum.“

„Rúnar Kárason og Guðmundur Hólmar Helgason fá til dæmis stærra hlutverk á morgun. Við sjáum svo hvernig það fer.“

Hann segir að Tandri Már Konráðsson hafi átt ágæta innkomu í leik Íslands í kvöld, sérstaklega í vörninni. „Svo datt hann niður á milli - sem var einkennandi fyrir allt liðið. Við vorum flottir en duttum svo of mikið niður. Það er erfitt að berjast í vörninni þegar við fáum of mikið af ódýrum mörkum á okkur og erum endurtekið að henda boltanum frá okkur í hraðaupphlaupum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×