Sport

Svona hita stuðningsmenn Denver Broncos upp fyrir leiki

Það er mikil upplifun að fara á leik í NFL-deildinni. Ekki bara út af leiknum sjálfum því upphitunin fyrir leiki í deildinni er einnig mikil upplifun.

Það er löng hefð fyrir því í Bandaríkjunum að fyrir heimaleiki allra liða hittist fólk á bílastæðinu fyrir utan völlinn og gerir sér glaðan dag.

Fólk mætir með grillin sín, stóla, borð og allt of mikið af mat og áfengi. Svo á fólk gæðastund. Leikur sér saman, borðar og horfir jafnvel á aðra leiki í sjónvarpinu.

Stemningin er einstök og það er afar sérstök upplifun að labba um bílastæðin og finna grilllyktina út um allt.

Henry Birgir Gunnarsson og Björgvin Harðarson skelltu sér á leik hjá Denver Broncos á dögunum. Spjölluðu við stuðningsmenn og fengu sér að borða að sjálfsögðu.

Innslagið má sjá hér að ofan.

NFL

Tengdar fréttir

Hlaupaleikurinn á undanhaldi í NFL-deildinni

Það hefur verið talað um það síðustu ár að NFL-deildin sé orðin "kastdeild“ og hlaupaleikurinn sé á undanhaldi. Það sannaðist rækilega í vetur.

Trump stríddi eiganda NY Jets

Forsetaframbjóðandinn og milljarðamæringurinn Donald Trump gladdist er NY Jets komst ekki í úrslitakeppni NFL-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×