Sport

Íhugar að gefa frá sér sjö milljarða og hætta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Calvin Johnson.
Calvin Johnson. vísir/getty
Einn besti útherji NFL-deildarinnar gæti lagt skóna á hilluna þó svo hann sé aðeins þrítugur.

Hér er um að ræða útherja Detroit Lions, Calvin Johnson, sem er kallaður Megatron enda ótrúlega sterkur útherji.

Hann átti aftur á móti sitt lélegasta tímabil á ferlinum í vetur og er sárþjáður. Hann náði samt 1.200 jördum og skoraði níu snertimörk sem er ágætis tímabil hjá flestum en ekki Megatron.

Johnson hefur ekki orðið fyrir neinum alvarlegum meiðslum en álagið á líkamann í íþróttinni er mikið og það er farið að plaga Johnson. Hann er núna að spjalla við gamlar kempur um lífið eftir NFL-deildina. Svo mun hann taka ákvörðun.

Ef hann hættir mun hann gefa frá sér tæpa sjö milljarða króna sem hann átti að fá í laun á næstu þremur árum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×