Bíó og sjónvarp

Ástarævintýri sem hófst snemma

,,Maður bíður auðvitað spenntur eftir að heyra hvernig þáttunum verður tekið þegar sýningar hefjast erlendis. Ég hef góða trú á að viðbrögðin verði jákvæð,“ segir Óskar Þór Axelsson, einn fjögurra leikstjóra Ófærðar.
,,Maður bíður auðvitað spenntur eftir að heyra hvernig þáttunum verður tekið þegar sýningar hefjast erlendis. Ég hef góða trú á að viðbrögðin verði jákvæð,“ segir Óskar Þór Axelsson, einn fjögurra leikstjóra Ófærðar. MYND/GVA
Íslenska sakamálaserían Ófærð hefur vakið mikla athygli og fengið góðar viðtökur meðal landsmanna. Þættirnir, sem eru framleiddir af RVK Studios, eru úr smiðju Baltasars Kormáks en leikstýrt af honum sjálfum og þremur öðrum leikstjórum, þeim Baldvini Zophoníassyni, Berki Sigþórssyni og Óskari Þór Axelssyni. Tíu þættir voru teknir upp og stýrir hver leikstjóri 2-3 þáttum.

Fyrir Óskar Þór Axelsson var þetta spennandi áskorun en síðasta verk hans, kvikmyndin Svartur á leik, kom út árið 2012 og fékk mjög góðar viðtökur. „Þetta eru auðvitað að mörgu leyti öðruvísi vinnubrögð en maður á að venjast þegar maður leikstýrir einn sinni eigin kvikmynd en um leið ákaflega skemmtileg reynsla. Baltasar, Sigurjón Kjartansson höfundur og hópurinn sem stóð að þáttunum pössuðu vel upp á að leyfa okkur hinum leikstjórunum að koma með hugmyndir í undirbúningsferlinu sem og að gefa okkur töluvert frelsi við að vinna þættina okkar.“

Byrjaði ungur

Áhuginn á kvikmyndagerð hefur fylgt Óskari frá því hann var drengur. „Ég byrjaði að gera stuttmyndir þrettán ára. Faðir minn lést fyrir aldur fram skömmu áður og eftir á að hyggja hugsa ég að þetta ástarævintýri mitt við kvikmyndagerð hafi að einhverju leyti byrjað sem flótti frá raunveruleikanum. En áður hafði ég líka alltaf verið að búa til teiknimyndasögur, skrifa sögur og búa til heimatilbúin útvarpsleikrit. Þannig að frásagnargleðin hefur fylgt mér svo langt aftur sem ég man.“

Óskar lauk BA-námi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands en stefndi alltaf á nám í kvikmyndagerð erlendis. Strax eftir útskrift stofnaði hann kvikmyndafyrirtækið Þeir tveir með Gunnari B. Guðmundssyni. „Fyrirtækið var stofnað utan um stuttmynd og í kjölfarið fórum við svo að gera sjónvarpsauglýsingar. Ég var því á fullu í auglýsingabransanum milli 1998 og 2001 þegar ég fór í kvikmyndagerðarnám í New York University.“

Ómetanlegt veganesti

Námið í Bandaríkjunum tók þrjú ár og var mjög krefjandi að sögn Óskars. „Um var að ræða nám í almennri kvikmyndagerð en með áherslu á leikstjórn og handritsgerð. Fyrstu tvö árin eru algjörlega strúktúreruð og maður átti ekki mikið líf utan skólans en lokaárið var frjálsara. Námið hjálpaði mér að þróa minn eigin stíl, en eins mótaði það kvikmyndasmekk minn og að læra að meta þau verk sem saman mynda hinn kvikmyndalega grunn sem við kvikmyndagerðarmenn nútímans erum að byggja ofan á. Það hefur reynst mér ómetanlegt veganesti.“

Óskar Þór ræðir málin við tökur Ófærðar.MYND/LILJA JÓNSDÓTTIR
Féll fyrir bókinni

Um það leyti sem Óskar var að útskrifast sendu framleiðendur kvikmyndarinnar Svartur á leik honum bókina eftir Stefán Mána sem myndin er byggð á. „Þeir töldu að ég væri einn þeirra sem gætu komið til greina sem leikstjóri þess verkefnis, ekki síst vegna gríðarlegs áhuga míns á glæpamyndum sem þeim var vel kunnugt um. Ég féll strax fyrir bókinni og sá að þarna væri kominn úrvals efniviður til að hefja feril minn sem leikstjóri kvikmynda í fullri lengd.“

Hann segir allt ferlið við gerð myndarinnar hafa verið mjög lærdómsríkt. „Ég kom að verkefninu í byrjun árs 2006 og myndin kom út í mars 2012. Ferlið tók því sex ár frá því ég kom að verkefninu og var því nokkuð löng og erfið meðganga. Fæðingin sjálf, þ.e. tökurnar og eftirvinnslan, gekk þó blessunar­lega vel og barnið hefur dafnað ágætlega síðan og ég er stoltur af því.“

Ánægður með útkomuna

Hann er afar ánægður með útkomu Ófærðar og þær viðtökur sem fyrstu þættirnir hafa fengið. „Mér finnst okkur hafa tekist nokkuð vel að gera það sem lagt var upp með, þ.e. skemmtilega og þrælspennandi seríu með góðum karakterum.“

Ófærð hefur selst mjög vel erlendis og verður serían m.a. sýnd á besta tíma á mörgum af helstu sjónvarpsstöðvum í Evrópu. „Ég er sérstaklega ánægður með að hún hafi selst til Bandaríkjanna en það er ákaflega erfiður markaður að komast inn á fyrir efni á öðru tungumáli en ensku og því mikil viðurkenning. Maður bíður auð­vitað spenntur eftir að heyra hvernig þáttunum verður tekið þegar sýningar hefjast erlendis. Ég hef góða trú á að viðbrögðin verði jákvæð og að meiri eftirspurn fylgi í kjölfarið eftir leiknu íslensku efni.“

Spennandi verkefni

Þessa dagana vinnur Óskar að aðlögun bókar Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem Zik Zak kvikmyndir framleiða ásamt Sigurjóni Sighvatssyni. „Við erum búin að klára tökur á annarri af tveimur sögum sem sagðar eru í þeirri bók. Þessa stundina er ég að snurfusa handritið fyrir seinni söguna sem gerist á Ísafirði ásamt því að vinna að klippingu fyrri hlutans með Kristjáni Loðmfjörð. Tökur á seinni partinum hefjast seint í mars.“

Auk þess er hann að vinna í ýmsum öðrum verkefnum. „Þar má m.a. nefna sjónvarpsseríu á vegum Sagafilm sem ég er mjög spenntur fyrir. Hún byggir á karakterum og söguheimi bókaraðarinnar um Stellu Blómkvist. Þá er ég að vinna að nokkrum bandarískum verkefnum en ég er með umboðsmannateymi í Los Angeles og vonandi mun eitthvert þeirra verða að veruleika á næstu árum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×