Enski boltinn

Hiddink enn ekki tapað í bikarnum og Chelsea áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ruben Loftus-Cheek fagnar marki sínu ásamt Willian og Gary Cahill.
Ruben Loftus-Cheek fagnar marki sínu ásamt Willian og Gary Cahill. Vísir/Getty
Chelsea er komið áfram í fjórðu umferð enska bikarsins eftir 2-0 sigur á C-deildarliði Schunthorpe. Mörkin komu í sitthvorum hálfleiknum.

Diego Costa kom Chelsea yfir á þrettándu mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Í síðari hálfleik bættu heimamenn við marki og þar var að verki varamaðurinn Ruben-Loftus Cheek.

Guus Hiddink hefur ekki tapað leik sem stjóri í FA-bikarnum, en hann var stjóri Chelsea árið 2009 þegar þeir urðu bikarmeistarar.

Chelsea vann þennan bikar síðast 2012, en liðið er nú komið í 32-liða úrslitin. Schunthorpe er úr leik, en mikil reynsla fyrir leikmenn liðsins að fá að spila á Stramford Bridge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×