Enski boltinn

Liverpool slapp með jafntefli við D-deildarlið Exeter

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jerome Sinclair fagnar marki sínu í kvöld.
Jerome Sinclair fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Liverpool og Exeter City þurfa að mætast að nýju í 3. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 2-2 jafntefli á heimavelli Exeter City í kvöld.

D-deildarlið Exeter City komst tvisvar yfir í leiknum en Liverpool náði að jafna metin í tvígang. Liðin þurfa því að mætast að nýju á Anfield Road, heimavelli Liverpool.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sem stýrða þarna liðinu í fyrsta skipti í ensku bikarkeppninni gerði ellefu breytingar á byrjunarliði sínu frá því í síðasta leik.

Liverpool var með algjört varalið og í byrjunarliðinu var það bara Christian Benteke sem hafði spilað meira en fimm leiki á tímabilinu.

Klopp var í miklum vandræðum með leikmenn enda þrettán leikmenn á sjúkalistanum.

Exeter City fékk draumabyrjun þegar Tom Nichols kom liðinu í 1-0 strax á 9. mínútu en hinn 19 ára gamli Jerome Sinclair jafnaði metin þremur mínútum síðar.

Lee Holmes kom Exter aftur yfir í lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu án þess að Adam Bogdan kæmi vörnum við í marki Liverpool.

Brad Smith tryggði Liverpool jafntefli og annan leik þegar hann jafnaði metin á 72. mínútu. Brad Smith hafði heppnina með sér því varnarmaður Exeter mistókst að koma boltanum frá.

Liverpool náði ekki að bæta við marki og tryggja sér sigurinn en slapp við vandræðalegt tap. Það eru þó ekki góðar fréttir fyrir meiðslahrjáð lið Liverpool að fá einn leik til viðbótar en nóg að gera hjá lærisveinum Jürgen Klopp í deild, bikar, deildabikar og Evrópukeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×