Lögregla stöðvaði unglingapartý í Mosfellsbæ Atli Ísleifsson skrifar 9. janúar 2016 10:31 Lögregla handtók ölvaðan og blóðugan mann á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær eftir að hann neitaði að fara út. Vísir/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af unglingapartýi í Mosfellsbæ um miðnætti þar sem tuttugu ungmennum vísað út en húsráðandinn 15 ára svaf ölvunarsvefni. Foreldrum var tilkynnt um málið. Lögregla handtók ölvaðan og blóðugan mann á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær eftir að hann neitaði að fara út. Hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands síns. Tilkynnt var um menn við heimili í Fossvogi þar sem þeir voru að stela gaskútum frá grillum. Lögreglu tókst ekki að hafa hendur í hári þeirra. Skömmu fyrir miðnætti var ölvaður maður handtekinn í Kópavogi, en hann hafði ítrekað hringt í 112 og fleiri neyðarnúmer. Maðurinn var ekki viðræðuhæfur og vistaður í fangageymslu. Um hálf tvö í nótt var tilkynnt um líkamsárás á veitingahúsi í Breiðholti. Maður var þar sleginn í andlitið og rotaðist. „Sjúkralið og lögregla á vettvang en maðurinn sem var orðinn vel áttaður vildi enga aðstoð. Gerandinn var farinn af vettvangi,“ segir í dagbók lögreglu. Upp úr klukkan tvö var tilkynnt um rúðubrot á pizzastað í Breiðholti. „Er lögregla kom á vettvang voru tveir menn að yfirgefa vettvang í bifreið og sögðu vitni farþegann hafa brotið rúðuna. Farþeginn var ölvaður og skorinn á hendi. Lögreglumenn fóru með manninn á Slysadeild til aðhlynningar og var hann síðan vistaður sökum ástands í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Ökumaðurinn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og var hann laus að lokinni upplýsinga- og sýnatöku.“ Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt var tilkynnt um yfirstandandi innbrot á heimili í Kópavogi. Dökkklædd manneskja var þá búin að brjóta rúðu og hafði farið inn. „Er lögregla kom á vettvang kom í ljós að húsráðandi (ung kona) hafði gleymt lyklum af íbúðinni og brotið sér leið inn. Konan var skorin á hendi og var henni ekið á Slysadeild til aðhlynningar,“ segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira