Körfubolti

Körfuboltakvöld: Sjáðu troðsluna mögnuðu og öll tilþrifin hjá Carberry í gær

Anton Ingi Leifsson skrifar
Skjáskot úr körfuboltakvöldi.
Skjáskot úr körfuboltakvöldi. vísir/skjáskot
Tobin Carberry var gjörsamlega frábær í fyrsta sigri Hattar í Dominos-deildinni þetta tímabilið, en Höttur vann sjö stiga sigur á Njarðvík í gær, 86-79.

Tobin skoraði 40 stig, gaf sex stoðsendingar, tók sex fráköst og var með sex stolna bolta. Frábært framlag frá Carberry sem var lykillinn að fyrsta sigri Hattar í vetur.

Umferðin var að sjálfsögðu kryfjuð til mergjar í þættinum Körfuboltakvöld í gærkvöldi, en þátturinn er á dagskrá eftir hverja umferð í Dominos-deildinni. Þar var rætt um frammistöðu Carberry.

„Hann var magnaður. Hann skóp þennan sigur að mestu leyti þó svo að ég sé sammála þjálfanum að þeir fengu meira framlag frá fleiri leikmönnum frá öðrum leikmönnum þá var hann frábær," sagði Hermann Hauksson, annar spekúlant þátanda.

„Þetta er það sem hann er búinn að vera gera í allan vetur. Það hefur bara enginn fylgt honum í þessari lest. Nú eru þeir að klára," bætti Kristinn Friðriksson, hinn sérfræðingurinn við.

Innslagið má sjá í heild sinni hér að neðan
.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×