Enski boltinn

Van Gaal býst ekki við að styrkja liðið í janúar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stuðningsmenn United hafa kallað eftir skemmtilegri fótbolta, en Van Gaal ætlar ekki að styrkja liðið í janúar.
Stuðningsmenn United hafa kallað eftir skemmtilegri fótbolta, en Van Gaal ætlar ekki að styrkja liðið í janúar. vísir/getty
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að það sé mjög ólíklegt að Mancheser United fjárfesti eitthvað í janúar-glugganum. Felipe Anderson, leikmaður Lazio, hefur verið mikið orðaður við United, en Van Gaal gaf lítið fyrir það.

Lazio gaf út í dag að þeir hefðu ekki fengið neitt tilboð frá United, en Lazio neitaði tilboði United í águst samkvæmt Igli Tare, yfirmanni knattspyrnumála hjá Lazio.

„Við fengum tilboð frá United þann 27. ágúst, en við neituðum því. Núna höfum við ekki fengið neitt tilboð frá United,” sagði Tari í samtali við Mediaset Premium fyrir 3-1 sigur Lazio á Fiorentina. Van Gaal var svo spurður út í Anderson:

„Ég get ekki rætt það við þig. Ég held að við munum ekki kaupa neitt í janúar,” sagði Van Gaal eftir að United marði 1-0 sigur á Sheffield United í þriðju umferð enska bikarsins í gær. Markið kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

„En þú getur ekki staðfest það því ef það er möguleiki að gera hópinn betri, þá munum við gera það, en ég held að við munum ekki gera það. Það er staðan á þessum tímapunkti.”

Anderson kom af bekknum og skoraði í 3-1 sigri Lazio á meistara-kandídötunum í Fiorentina, en hann sagði við Sky á Ítalíu að hann vissi ekki hvort hann yrði áfram á Ítalíu.

„Ég veit ekki. Ég einbeiti mér að mínu starfi og að gera það vel, því ég veit ekki hvað mun gerast.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×