Matur

Heimagerðir jarðarberjakleinu- hringir À la Blaka

matarvísir skrifar
Vísir/Blaka.is

Sannkallað kleinuhringjaæði hefur gripið landann en þó keyptir hringir geti verið góðir, þá eru heimagerðir enn betri.

Lilja Katrín bakari á vefsíðunni blaka.is deilir hér með lesendum uppskrift sinni að jarðarberjakleinuhringjum.

Nú er málið að láta hendur standa fram úr ermum, skella á sig svuntunni og baka sína eigin lúxuskleinuhringi.

Kleinuhringir

1¼ bolli Kornax-hveiti

½ tsk. matarsódi

1 tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

60 g smjör

½ bolli sykur

1 stórt egg

½ bolli mjólk

1 tsk. vanilludropar

5 stór jarðarber

Glassúr

¼ bolli rjómi

1 tsk. síróp

60g 56% súkkulaði

Aðferð

Hitið ofninn í 180°C og smyrjið kleinuhringjamótin vel.

Blandið hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti vel saman í skál og setjið til hliðar.

Blandið smjöri og sykri vel saman. Bætið egginu við og hrærið vel.

Því næst er vanilludropunum blandað saman við.

Skiptist á að blanda þurrefnum og mjólk saman við smjörblönduna þar til allt er vel blandað saman.

Saxið jarðarberin smátt og blandið þeim varlega saman við.

Setjið deigið í mótin. Mér finnst best að setja deigið í lítinn plastpoka, klippa eitt hornið af og sprauta deiginu í formin til að það sullist ekki allt út um allt. Bakið í 10 til 12 mínútur.

Vísir/blaka.is

Glassúr

Hitið rjóma og síróp yfir meðalháum hita þar til blandan fer að sjóða. 

Leyfið henni að sjóða í 2 mínútur og takið þá af hellunni.

Setjið súkkulaðið ofan í og leyfið þessu að standa í 5 mínútur.

Þeytið allt vel saman og skreytið kleinuhringina.


Tengdar fréttir

Bakað með allt í botni

Lilja Katrín bakar af hjartans sálarkröftum og hlustar á skemmtilega tóna um leið

Einföld sítrónukaka Lilju Katrínar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir heldur úti girnilegu kökubloggi og gefur lesendum Matarvísis uppskrift af ómótstæðilegri sítrónuköku






Fleiri fréttir

Sjá meira


×