Matur

Brómberjasæla sem bræðir bragðlaukana

Brómberjasæla er algjör sæla.
Brómberjasæla er algjör sæla.

Langar þig að smakka dýrindis Brómberjasælu, sem er sko ekki að grínast?

Brómberjasæla

Kaka

1½ bolli Kornax-hveiti

½ tsk. salt

2½ tsk. lyftiduft

¾ bolli púðursykur

2 msk. súraldinbörkur

75 g smjör

1 egg

½ bolli mjólk

1 tsk. vanilludropar

300 g brómber



Hitið ofninn í 185°C og smyrjið hringlaga kökuform.

Blandið hveiti, salti, lyftidufti, púðursykri og súraldinberki vel saman og setjið til hliðar.

Bræðið smjörið í örbylgjuofni og leyfið því að kólna í 3 til 5 mínútur. Blandið því síðan saman við eggið, mjólkina og vanilludropana.

Blandið þurrefnum saman við smjörblönduna og blandið síðan brómberjunum varlega saman við. Setjið deigið í kökuformið.

Rjómaostsþekja

225 g mjúkur rjómaostur

1 egg

2 msk. sykur

Blandið öllu vel saman og smyrjið yfir kökuna.



Mulningur


½ bolli Kornax-hveiti

½ bolli púðursykur

½ tsk. kanill

55 g smjör

Blandið hveiti, púðursykri og kanil vel saman.

Brytjið smjörið út í og vinnið blönduna með höndunum þar til hún líkist mulningi.

Dreifið mulningnum yfir kökuna og bakið hana í 35 til 45 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í 15 til 20 mínútur áður en hún er tekin úr kökuforminu.

Uppskrift fengin af blaka.is

Þessi bræðir þig.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×