Skoðun

Af endurhæfingu krabbameinsgreindra

Hulda Hjálmarsdóttir skrifar
Þegar fólk veikist af lífsógnandi sjúkdómum, með langvarandi afleiðingum á heilsu og lífsgæði, skiptir miklu máli að markviss og skipulögð endurhæfing sé í boði. Þeim sem gangast undir hjartaaðgerð stendur slík endurhæfing sjálfkrafa til boða eftir aðgerð ýmist á endurhæfingarstöð Landspítalans og/eða á Reykjalundi. Misjafnt er hvernig staðið er að þessum málum á landsbyggðinni en hingað til hefur landsbyggðarfólk einnig átt aðgang að Reykjalundi.

Aftur á móti eru endurhæfingarmál krabbameinssjúklinga ekki í eins föstum skorðum en þrátt fyrir það eiga þeir möguleika á margs konar úrræðum.

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er sérhæfð endurhæfing og stuðningur, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt andlegt og félagslegt þrek. Það góða starf sem þar er unnið hefur reynst mörgum krabbameinsveikum afar vel.

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess, hefur nú sett á laggirnar endurhæfingar- og útivistarhóp, Fítonskraft, fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Fítonskraftur nýtur stuðnings frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands en starfinu stýrir íþróttafræðingur með meistarapróf á sviði endurhæfingar krabbameinsgreindra. Um er að ræða ungt fólk sem vill endurhæfa sig og stunda íþróttir og útivist undir handleiðslu sérfræðings.

Kærkomin viðbót

Þessi starfsemi Krafts og KÍ er kærkomin viðbót við þá faglegu starfsemi sem boðið er upp á í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands. Þar geta allir, sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra, komið og notið bæði andlegrar og líkamlegrar uppbyggingar, t.d. sótt qigong-heilsuæfingar, djúpslökun, sálfræðiþjónustu, samtalsmeðferð sérhæfðra hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa, námskeið í núvitund og hugrænni atferlismeðferð, svo eitthvað sé nefnt. Flest af þessu er án endurgjalds.

Fítonskraftur er valkostur fyrir ungt fólk sem vill endurhæfa sig og stunda íþróttir og útivist með jafnöldrum sínum, þ.e. ungu fólki á aldrinum 18–40 ára; fólki sem e.t.v. finnur sig ekki á eigin vegum við sjálfstæðar æfingar innan líkamsræktarstöðvanna. Í Fítonskrafti fær þetta unga fólk tækifæri til að bera saman bækur sínar um reynslu sína og veitir þannig jafningjastuðning um leið og það stundar endurhæfingu, íþróttir og útivist samkvæmt eigin getu undir handleiðslu sérfræðings.

En þrátt fyrir að krabbameinsgreindum standi til boða ýmsir góðir valkostir í endurhæfingarmálum er engu að síður afar æskilegt að heilbrigðisyfirvöld móti stefnu í endurhæfingarmálum þessa sjúklingahóps, sem líkist þeirri sem mótuð hefur verið fyrir hjartasjúklinga. En á meðan slík stefna er ekki til staðar, stendur öllum skjólstæðingum til boða að velja á milli nokkurra góðra kosta eins og endurhæfingarinnar í Ljósinu, Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands og hjá Krafti í hinum nýja hópi, Fítonskrafti. Allt eru þetta afar góð úrræði, þótt áherslur séu misjafnar. Mestu máli skiptir að krabbameinsveikt fólk hafi valkosti á sviði endurhæfingar og íþróttaiðkunar. Þessir góðu valkostir eru reknir af sjálfstæðum félagasamtökum en undanskilur þó ekki opinbera aðila að skipuleggja heildstæða stefnu á sviði endurhæfingar þessa hóps sjúklinga þannig að allir geti nýtt sér þjónustuna, hvar sem þeir kunna að vera búsettir á landinu.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×