Innlent

Tók fjóra mánuði að fá niðurstöðu krufningar vegna manndrápsins í Breiðholti

fanney birna jónsdóttir skrifar
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Breiðholti í september í fyrra er nú á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi.
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Breiðholti í september í fyrra er nú á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi. vísir/Stefán
Konan sem fannst látin í heimahúsi að Stelkshólum í Reykjavík í september á síðasta ári lést af mannavöldum. Þetta er niðurstaða krufningar á konunni.

Tæpa fjóra mánuði tók að fá endanlega niðurstöðu krufningar í málinu. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í refsirétti, segir með ólíkindum hversu langan tíma taki að fá niðurstöðu krufningar.

„Þetta er alveg með ólíkindum. Auðvitað er það ljóst að það er mjög bagalegt, bæði fyrir sakborning og auðvitað fyrir rannsakendur og ákæruvald, að krufning skuli taka svona langan tíma. Lögregla og saksóknari verða að gefa viðhlítandi skýringar á því hvers vegna krufning, sem ætti ekki að taka mikinn tíma, gerir það samt. Þetta er mjög undarlegt,“ segir Sveinn Andri.

Tæplega þrítugur eiginmaður konunnar var handtekinn samdægurs grunaður um morðið. Hann sætir nú öryggisgæslu á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi.



Sveinn Andri Sveinsson Hæstaréttarlögmaður
Maðurinn hefur neitað sök

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur maðurinn staðfastlega neitað sök í málinu.

Konan lést eftir að þrengt hafði verið að öndunarvegi hennar, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að notað hafi verið einhvers konar band eða snæri við verknaðinn. Hélt maðurinn því fram að konan hefði tekið sitt eigið líf.

Ríkissaksóknari hefur málið til meðferðar og tekur ákvörðun um hvort ástæða sé til að gefa út ákæru í málinu.

Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að maðurinn hafði samband við annan aðila sem lét lögreglu vita skömmu eftir miðnætti umrædda nótt í september. Við komu lögreglu á vettvang vaknaði strax grunur um að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti. Börn hjónanna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu nóttina sem konan lést. Í kjölfarið voru þau send í umsjá barnaverndaryfirvalda sem komu þeim í vistun hjá vinafólki hjónanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×