Enski boltinn

Benteke aftur hetja Liverpool | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Liverpool lyfti sér upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 sigri á Sunderland í kvöld. Þetta var síðasti leikur ársins í úrvalsdeildinni.

Christian Benteke skoraði sigurmark Liverpool í upphafi seinni hálfleiks en hann tryggði Rauða hernum einnig 0-1 sigur á Leicester City á öðrum degi jóla.

Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Liverpool er nú komið með 30 stig, jafnmörg og Manchester United, og er fimm stigum frá 4. sætinu sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Sunderland er hins vegar í afar vondum málum í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×