Innlent

Bjarni skýtur föstum skotum á Ólaf Ragnar

Atli Ísleifsson skrifar
Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff forsetafrú aðstoðuðu við matardreifingu hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ fyrr í dag.
Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff forsetafrú aðstoðuðu við matardreifingu hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ fyrr í dag. Vísir
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skýtur föstum skotum á Ólaf Ragnar Grímsson forseta í Twitter-síðu sinni nú undir kvöld.

Bjarni segist sýnast að Ólafur Ragnar vilji sjá nýja forgangsröðun þegar kemur að fjárveitingum ríkisvaldsins. „Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna,“ spyr Bjarni.

Bjarni vísar þarna í frétt í kvöldfréttum RÚV þar sem forsetinn var spurður út í ákvörðun stjórnarmeirihlutans að hafna breytingatillögu minnihlutans við fjáraukalög sem hefði hækkað bætur aldraðra og öryrkja afturvirkt.

„Þeir sem hafa byggt upp þetta þjóðfélag, þá velmegun sem við njótum í dag, þá innviði þess Íslands sem við þekkjum, eru hinir öldruðu,“ sagði Ólafur Ragnar, þegar hann og Dorrit Moussaieff forsetafrú aðstoðuðu við matardreifingu hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ fyrr í dag.

„Við eigum þakkarskuld við þetta fólk að það geti lifað sómasamlegu lífi og hvort sem það eru aldraðir eða öryrkjar eða fólkið sem þarf að standa hérna í biðröð í kuldanum til að eiga mat fyrir sjálfan sig og börnin er auðvitað merki um það að við sem þjóð höfum ekki staðið okkur.“

Forsetinn sagði að honum væri það óskiljanlegt að hér á landi skuli ekki allir geta haldið mannsæmandi jólahátíð en þurfi að reiða sig á matargjafir og aðra aðstoð. Hann sagði að aldraðir og öryrkjar eigi ekki að þurfa að bíða í röð úti í kuldanum eftir aðstoð.

Samkvæmt fjárlögum mun embætti forseta Íslands fá úthlutað rétt tæpum 260 milljónum úr ríkissjóði á næsta ári. 218,3 milljónir renna til almenns reksturs og 35,4 milljónir til opinberra heimsókna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×