Innlent

„Sögulegum stormi“ spáð á Íslandi á morgun

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Djúp lægð nálgast landið óðfluga og spá fjölmiðlar ytra því að stormurinn verði „sögulegur“. Er hann talinn verða svo öflugur að met verði slegin.
Djúp lægð nálgast landið óðfluga og spá fjölmiðlar ytra því að stormurinn verði „sögulegur“. Er hann talinn verða svo öflugur að met verði slegin. mynd/mashable/EARTH SIMULATOR
Fjölmiðlar ytra telja að lægðin sem nú nálgast landið verði söguleg. Líklega verði met slegin á Norður-Atlantshafi, þegar lágþrýstingskrefið sem olli öflugum hvirfilbyljum við Dallas í Bandaríkjunum umbreytist í risavaxinn storm yfir Íslandi.

Á vefsíðu Washington Post er sagt frá því að öflugir vindar séu algengir á Íslandi. Þessi stormur gæti þó orðið með þeim sterkustu og að heita loftið sem honum fylgi gæti hækkað hitastigið á Norðurpólnum um nokkrar gráður. Þá muni Bretar einnig finna vel fyrir óveðrinu.

Reikningar bregðast oft

Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifaði á bloggsíðu sína í gær að Evrópumiðstöðin hefði „heldur betur bætt í lægðina miklu“ sem eigi að heimsækja okkur á aðfaranótt miðvikudags. Hún reikni miðjuþrýsting nú 931 hPa. Þá vilji bandaríska veðurstofan enn betur og segi 924 hPa, en að efri talan sé líklegri.

Sjá einnig: Fylgstu með storminum nálgast



„Það er sárasjaldan að þrýstingur fer niður fyrir 930 hPa hér við land. Fullsnemmt er þó að fara að smjatta á slíku – enn er meir en sólarhringur til stefnu og reikningar bregðast oft á styttri tíma. Við bíðum því aðeins með einhverjar greinargerðir um lágþrýsting,“ skrifar Trausti.

Veðurstofan varaði í dag við stormi víða á landinu, þar sem hún býst við roki eða ofsaveðri á landinu í kvöld, en að það lægi strax annað kvöld. Veðurspána má sjá hér fyrir neðan:

Suðaustlæg átt í dag 8-15 m/s. Þurrt norðan- og norðaustanlands, slydda eða rigning með köflum sunnantil, en annars dálítil él. Mjög djúp lægð nálgast landið í kvöld úr suðri með ört vaxandi austan átt og fer hún allhratt norður yfir land í nótt. Aðal vindstrengur þessarar lægðar er austan við lægðarmiðjuna og gera nýjustu spár ráð fyrir að vindstrengurinn nái inn á landið austanvert með sunnan roki og sums staðar fárviðri við austurströndina í nótt.

Mikilvægt er að fylgjast með veðurspám því ekki þarf braut lægðarinnar að breytast mikið til þess að miklar breytingar verði á veðurspám. Í kvöld og nótt má einnig búast við talsverðri úrkomu suðaustanlands og á Austfjörðum. Upp úr hádegi á morgun verður lægðin komin norður fyrir land og má þá búast við suðvestan átt 15-25 m/s með skúrum eða éljum um landið sunnan- og vestanvert, en hvassast verður þá á annesjum norðantil. Annað kvöld dregur síðan ört úr vindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×