Formúla 1

Tvö ár síðan Schumacher lenti í skíðaslysinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Michael Schumacher.
Michael Schumacher. vísir/getty
Tíminn líður hratt. Í dag eru nákvæmlega tvö ár síðan Formúlukappinn Michael Schumacher slasaðist alvarlega á skíðum.

Schumacher hlaut alvarlegan heilaskaða í slysinu. Lítið annað er vitað um ástand Þjóðverjans enda lítið sem ekkert verið gefið upp um það.

Hann er þó sagður vera rúmliggjandi og ekkert er vitað um hvort hann sé með meðvitund eða geti tjáð sig á einhvern hátt.

Schumacher varði alltaf rétt sinn til einkalífs og fjölskylda hans gaf reglulega frá sér stuttar skýrslur eftir slysið en hefur síðan lokað á fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×