Innlent

Kári hótar ríkisstjórninni 100 þúsund undirskriftum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
"Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/Vilhelm
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fer hörðum orðum um núverandi ríkisstjórn og formann fjárlaganefndar í pistli í Fréttablaðinu í dag sem ber titilinn „Einnota ríkisstjórn“. Hótar hann fjárlaganefnd söfnun eitt hundrað þúsund undirskriftum breyti nefndin ekki fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016 á þann veg að meira fjármagn fari til Landspítalans.

„(Þá) munum við nokkrir félaga safna 100.000 undirskriftum undir plagg sem hvetur landsmenn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórnmálaflokka sem standa að þessari ríkisstjórn vegna þess kulda og afskiptaleysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okkar samfélagi.“

Kári segir ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs ekki munu sitja lengur en sem nemi kjörtímabilinu. 

Ástæðan er margþætt og það á við hér eins og segir í Geirmundarsögu Heljarskinns að: „það renna margir orsakalækir að einum ósi örlaga.“ Rýnum nú í þau spjöld í sögu ríkisstjórnarinnar sem gera það að verkum að það er búið að skammta henni þá daga sem hún mun telja.“

Vangoldin loforð

Kári gagnrýnir harðlega ríkisstjórnina fyrir vangoldin loforð í síðustu kosningum til Alþingis.

Í málflutningi sínum fyrir síðustu alþingiskosningar gagnrýndu núverandi stjórnarflokkar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að hola að innan heilbrigðiskerfið og hétu því að styðja það betur ef þeir kæmust á valdastóla. Þetta gladdi þá okkar sem eru nægilega vitgrannir til þess að hlusta á það sem stjórnmálamenn segja fyrir kosningar. Nú æxluðust mál þannig að afturendar hinna loforðaglöðu hafa vermt valdastóla í tvö og hálft ár en heilbrigðiskerfið er í engu minna rusli en áður og það horfir ekki til bóta nema síður sé.

Það uppkast að fjármálafrumvarpi ársins 2016 sem nú liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir því að fjárframlög til Landspítalans verði óbreytt þótt það sé ljóst að það muni kosta fjórum milljörðum meira þá en nú að halda uppi sömu þjónustu og hefur verið veitt í ár. Það á sem sagt ekki einu sinni að halda í horfinu hvað þá að gera betur.“

Margar aðrar leiðir en nýtt hús

Þetta sé sama ríkisstjórn sem hafi lokkað til sín kjósendur með loforðum um bætt heilbrigðiskerfið. Standi hún við það loforð þá sé rétt að hafa í huga að endurreisn Landspítalans feli í sér að sjá honum fyrir þeim tækjum sem nútímalæknisfræði kalli á og því fagfólki sem þurfi til að hlúa að sjúkum og meiddum meðan safnað er liði til að reisa nýtt hús. Margar aðrar leiðir séu til þess að bæta heilbrigðiskerfið og spara sem fela ekki í sér að reisa nýtt hús.

Tekur Kári dæmi:

Gáttaflökt er algengast þeirra hjartsláttaróreglna sem koma þolendum í hendur heilbrigðiskerfisins. Um það bil 25% Íslendinga fá kast af gáttaflökti einhvern tíma á ævinni og þar af fær stór hundraðshluti endurtekin köst eða óreglan verður viðvarandi. Einn af fylgifiskum gáttaflökts er heilablóðfall og er gáttaflöktið ábyrgt fyrir í það minnsta 30% þeirra. Þess vegna eru þolendur settir á blóðþynningu til þess að fyrirbyggja heilablóðföll og þegar þeir fá kast eru þeir svæfðir og þeim veitt rafstuð til þess að reyna að koma þeim í réttan takt, sem er kallaður sínus og það veit sá einn sem í flökti hefur lent hvað sínusinn er mikil blessun.

Nýverið hafa læknar á Landspítalanum, undir forystu Sigfúsar Gissurarsonar sem er ungur snillingur, farið að gera flókna brennsluaðgerð til þess að fyrirbyggja köst hjá þeim sem hafa fengið þau. Hann segir mér að á landi hér sé þörf á um það bil 150 slíkum aðgerðum á ári, en hann fær ekki leyfi til þess að gera nema 60. Það er sem sagt biðlisti fyrir þessar brennsluaðgerðir sem lengist um eitthvað minna en 90 á ári vegna þess að einhverjir á listanum deyja af sjúkdómnum eða öðru.Hver aðgerð kostar um 700.000 krónur þannig að hann fær 42 milljónir á ári en þyrfti 105 milljónir til þess að sinna þörfinni.

Afleiðingin af þessum 63 milljóna króna sparnaði er kostnaður sem er vafalítið margföld sú upphæð í lyfjum þeirra sem ekki þyrftu þau eftir aðgerð og í kostnaði við rafvendingarnar, að maður tali nú ekki um ávinninginn af vellíðan og starfsgetu þeirra sem eru allt í einu komnir í viðvarandi sínus.
Sú staðreynd að ákvörðunin um að það megi ekki gera nema 60 brennsluaðgerðir á ári var tekin af skriffinni einhvers staðar í stofnun sem heitir Sjúkratryggingar Íslands breytir ekki því að það er á ábyrgð kjörinna fulltrúa fólksins í landinu að framselja valdið til þess að taka svona ákvarðanir.

Þetta er ákvörðun sem endanlega kostar þjóð stórfé og einstaklinga þjáningu og jafnvel varanlega fötlun eða lífið. Það væri sjálfsögð betrumbót á heilbrigðiskerfinu að leyfa Sigfúsi að mæta þörfinni fyrir brennsluaðgerðir að fullu þótt henni fylgi skammtímakostnaður.“

Kirkjan fær meira en spítalinn minna

Kári gagnrýnir harðlega að ríkisstjórnin leggi til aukin fjárlög til kirkjunnar á meðan Landspítalinn fái ekki meir.

„Eftir alla þá umræðu sem hefur átt sér stað og þann einróma vilja sem fólkið í landinu hefur tjáð að Landspítalinn fái meira er sú ríkisstjórn dauðadæmd sem stendur bísperrt fyrir framan fólkið og segir Landspítalinn, ekki meir, ekki meir.“

Kári nefnir fimmaura brandara félaga síns sem sé rétt mátulega fyndinn en engu fáránlegri en efni málsins, sem sé aukið fé til kirkju en minna til Landsspítalans.

„Þegar ég benti lækni nokkrum vini mínum á hvað það væri skringilegt að þjóð sem ekki hefði efni á að sinna brýnum vandamálum heilbrigðiskerfisins yki útgjöld til einnar tegundar annarslífstrúar svaraði hann að kannski stafaði það af því að hæstvirtur fjármálaráðherra hafi raunverulegt innsæi inn í vandamál heilbrigðiskerfisins en í stað þess að leysa þau ætli hann að sjá til þess að þeir sem látist af þeirra völdum verði jarðsungnir með stæl og komi ekki til með að skorta góðar jarðarfarir.“

Svartur blettur á menningu Íslands

Kári segir fjársvelti Landspítalans og heilbrigðiskerfisins í heild svartan blett á íslenskri menningu.

„Fjárfesting okkar í heilbrigðiskerfinu er langt undir OECD meðaltali. Það er ekki bara ríkisstjórnum um að kenna heldur allri þjóðinni vegna þess að við kusum fólk til þess að stjórna landinu sem ákvað að svona ætti þetta að vera. Þetta á ekki bara við um núverandi ríkisstjórn því ástandið var jafnvel verra undir þeirri síðustu. Hvernig stendur á því að við sem þjóð sættum okkur við að hlúa svona illa að sjúkum og meiddum samborgurum okkar? Við þeirri spurningu veit ég ekkert annað svar en að það hlýtur að vera eitthvað mikið að höfuðskeljainnihaldinu okkar.“

Hann spyr hvaða úrræði hafi staðið stjórnvöldum til boða til þess að hysja heilbrigðiskerfið upp á ásættanlegan stað?

„Það er ekki of mælt að ætla að það þyrfti um það bil 150 milljarða króna til þess. Og hvaðan ættu þeir svo sem að koma? Í leit að svari við þeirri spurningu beinist athyglin að þrotabúum þeirra banka sem settu samfélagið á hliðina. Fyrr á árinu gáfu Sigmundur og Bjarni það í skyn að ríkið myndi sækja allt að 850 milljarða króna í þrotabúin en þegar upp er staðið virðist það ætla að verða um 300 milljarðar. Ekki hafa fengist haldgóðar skýringar á því hvers vegna þeir sætta sig við svo skarðan hlut en eitt er víst að 500 milljarðarnir sem á milli ber hefðu gert gott betur en að laga íslenskt heilbrigðiskerfi.“

Vildu ekki styggja kröfuhafa?

Kári telur helst líta út fyrir að nægjusemi flokksforingjanna tveggja, Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs, eiga rætur sínar að rekja í því að þeir hafi ekki viljað taka þá áhættu að styggja aðra kröfuhafa í þrotabúin með því að taka meira.

„Það er dapurlegt að sitja uppi með kornunga leiðtoga sem ættu aldur síns vegna að vera hungraðir, kraftmiklir og hugrakkir en þora ekki að taka það sem við þurfum og eigum skilið. Það er eins og þeir geri sér ekki grein fyrir því að það er miklu meiri áhætta tekin með því sækja ekki nægilegt fé í þá einu sjóði sem eru okkur aðgengilegir til þess að bylta íslensku heilbrigðiskerfi inn í nútímann. En þeir eru sem sagt reiðubúnari til þess að taka þá áhættu sem felst í því að láta þjóðina búa við stórgallað heilbrigðiskerfi og úrelt.

Og Sigmundur og Bjarni standa hoknir í hnjánum fyrir framan kröfuhafana sem eru fulltrúar hins erlenda auðvalds, og eru hreyknir yfir því að þeir kvörtuðu ekki undan dílnum sem þeir fengu og virðast ekki gera sér grein fyrir því að það voru ekki bara kröfuhafarnir sem glötuðu allri virðingu fyrir þeim þegar buxurnar þeirra fóru að blotna heldur hið alþjóðlega samfélag allt og ekki síst íslensk þjóð.“

Páll ekki að tala um göt í gegnum fjöll

Kári hefur ýmislegt að athuga við samskipti Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, og Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, að undanförnu. Vigdís lét hafa eftir sér á dögunum að Páll beitti fjárlaganefnd andlegu ofbeldi.

„Þar gætti svolítils misskilnings af hennar hálfu því þótt það hafi brunnið á hörundi nefndarmanna að heyra lýst þeirri þörf sjúklinga sem þeir ætluðu ekki að mæta þá er ekki um ofbeldi að ræða af Páls hálfu heldur lýsingu á raunveruleika. Það má hins vegar deila um það hvað væri viðeigandi nafn á þann gjörning nefndarinnar sem fólst í því að daufheyrast við baráttu Páls fyrir því að spítalinn fengi í það minnsta að halda í horfinu.

Í stað þess að skammast sín ákvað formaðurinn að veitast að Páli og kalla hófstillta baráttu hans fyrir hagsmunum þeirra sem minnst mega sín í íslensku samfélagi andlegt ofbeldi. Nefndin virðist gleyma því að Páll er ekki að tala um göt í gegnum fjöll eða sendiráð í Tókíó heldur sjúkdóma fólksins í landinu, sársauka, kvíða, angist og líf og dauða og síðan sjúkdóma, sársauka, kvíða, angist og líf og dauða foreldra og barna fólksins. Og nefndin daufheyrist við því af botnlausum hroka og grimmd.

Við þetta verður ekki búið af því að í þessu landi býr gott fólk sem þykir vænt hverju um annað þótt á því finnist kannski einstaka undantekningar í ríkisstjórnum og þingnefndum. Þess vegna vil ég láta fjárlaganefnd vita að ef hún breytir ekki frumvarpinu á þann veg að mun meira fari til Landspítalans munum við nokkrir félagar safna 100.000 undirskriftum undir plagg sem hvetur landsmenn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórnmálaflokka sem standa að þessari ríkisstjórn vegna þess kulda og afskiptaleysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okkar samfélagi. Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×